Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 72
Náttúrufræðingurinn
4. mynd. Aldeyjarfoss fellur fram af Bárðardalshrauni þar sem það leggst upp að Hrafnabjargamyndun. - The famous waterfall
Aldeyjarfoss has cut a canyon into the Bárðardalur lava. The basalt columns are in the lower part of the lava. Ljósm./Photo: ÁH.
eyjar, einkum í stöðuvatnaseti og er
þar gjarnan 5-10 mm á þykkt.
Seinna hefur þetta gjóskulag fund-
ist víða á Islandi og er mikilvægt
leiðarlag í gjóskulagasniðum. Það
féll samhliða stórgosi í Gríms-
vötnum fyrir um 10.300 árum sam-
kvæmt vitnisburði ískjarna úr
Grænlandsjökli.6 Hraunið er því
meira en 10.300 ára (raunaldur).
Flatarmál og rúmmál hraunsins í
heild eru óþekkt. Hér verður aðeins
lagt mat á stærð þess hluta Ut-
brunahrauns sem er á rannsóknar-
svæðinu sem farið var um sumarið
2003. Þá er suðurjaðarinn dreginn
sunnan Suðurárbotna en austur-
jaðarinn lagður í norður frá Sel-
landafjalli. Reiknað er með hraun-
tungu sem teygir sig að Hrafna-
björgum og annarri sem nær að
Suðurárósum. Flatarmálið innan
þessara marka er 80-90 km2.
Þykktin er lítt þekkt utan bor-
holanna en jaðrar hraunsins eru
hvarvetna lágir, eða aðeins 1-3 m á
hæð. Miðað við hversu mikil og
samfelld hraunþekjan er á Ut-
brunasvæðinu getur það þó ekki
verið mjög þunnt. Hér verður
miðað við 12 m meðalþykkt sem
hlýtur að teljast lágmark. Rúmtakið
innan svæðisins verður því 1 km3.
Bárðardalshraun
Bárðardalshraun má rekja á yfir-
borði allt frá því að það kemur út
undan svokölluðu Fellsendahrauni
sunnan við Suðurárbotna. Fells-
endahraun er jarðfræðilegt heiti á
hrauni sem þekur stórt svæði vestan
Dyngjufjalla og talið er að hafi
komið upp í gosi á 12. eða 13. öld
sem engum sögum fer þó af.7 A
kortum sést að ömefnið Frambmni
er einnig notað um þetta unga
hraunaflæmi. Frá nyrstu tungum
Fellsendahrauns má rekja háan jaðar
Bárðardalshrauns til norðurs niður
með Suðurá þar semþað liggur ofan
á Utbrunahrauni. A þessu svæði
nefnist hraunið Suðurárhraun. Víða
er það úfið á yfirborði en hellu-
hraunsflákar em hér og hvar. Það
hefur flætt niður í Bárðardal á
tveimur stöðum, sitthvoru megin
Skafhóla. Syðri straumurinn hefur
skriðið niður með Sandá og að
Skjálfandafljóti á Skafeyrum og
stöðvast og myndar þar mikla hellu-
hraunstungu.
Aðalstraumurinn, sem er úr mun
úfnara hrauni, kom niður í Bárðar-
dal norðan Skafhóla og rann upp að
Hrafnabjörgum vestan Skjálfanda-
fljóts. Við björgin klofnaði hraunið
um hrauntungu í Utbrunahrauni en
í hana sér eins og sléttlendan fláka í
158