Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 74
Náttúrufræðingurinn
Svæði
Region
1. Hraun vestan Gígaldna hulið eldri hraunum
2. Bárðardalshraun á yfirborði að Svartárósi
3. Bárðardalshraun frá Svartárósi að Ullarfossi
Alls/Total
Lengd Length km Þykkt Thickness m Flatarmál Area km2 Rumtak Volume ktn3
40 18 300 5,40
23 18 90 1,62
38 18 54 0,97
101 444 7,99
The size of Bárðardalur lava.
1. tafla. Stærð Bárðardalshrauns -
eru eins og sundurtætt. Yfirborðið er
mjög veðrað og hraunbrynja á
gígræksnunum öll uppbrotin og
sandblásin. Hugsanlegt er að jökull
hafi gengið yfir svæðið, eða hluta af
því, eftir að gígamir mynduðust.
Ekki em nema 8 km úr miðjum
Gígöldum að jaðri Vatnajökuls í dag.
Hraun runnu bæði til austurs og
vesturs frá Gígöldum. Guttormur
nefnir þau einu nafni Krepputungu-
hraim en þama er um allmörg hraun
að ræða sem þekja stór svæði í
Krepputungu allt að ármótum
Jökulsár og Kreppu. Hann rakti út-
breiðslu þeirra ekki til vesturs enda
hverfa þau þar undir yngri hraun
bæði frá Dyngjufjöllum og Trölla-
dyngju en segir þó að hugsast geti að
Bárðardalshraun séu þaðan upp-
runriin.
Guttormur bendir á að dílasam-
setning Krepputunguhrauna og
gjósku frá Gígöldum sé mjög áþekk
því sem er í Tungnárhraunum og
telur að bergfræðilegur skyldleiki sé
þama á milli. Samkvæmt því myndu
Gígöldur tilheyra goskerfi Bárðar-
bungu eins og Tungnárhraunin gera.
Það sama virðist gilda um Kinnar-
hraun og Bárðardalshraun.
Stærð og aldur Bárðardalshrauns
Þykkt Bárðardalshrauns er illa
þekkt. Borholan SS-01 í Suðurár-
króki er eina holan sem bomð hefur
verið í gegn um það. Hún er nálægt
hraunjaðri og í henni er hraunið 10
m þykkt. Við Aldeyjarfoss virðist
það um 25 m þykkt. I gljúfrinu við
Goðafoss er þykkt þess um 18 m, yst
í Bamafellsgljúfri er það 28 m og við
Ullarfoss er það a.m.k. 20 m (5.
mynd). Meðaltalið er 20,2 m. I rúm-
málsreikningum sem hér fylgja er
reynt að meta hve hraunið sam-
svarar miklu magni af þéttu bergi. Ef
kargahluti þess væri allur þéttur
yrði meðalþykkt hraunsins um 18
m.
í stærðarmatinu hér á eftir er
hrauninu skipt í þrennt:
1. Upptakasvæðið í Gígöldum og
hraun vestan þeirra hulið yngri
hraunum.
2. Hraun á yfirborði norðan við
Fellsendahraun og allt að Svart-
árósi.
3. Hraunið í Bárðardal frá Svartárósi
að Ullarfossi.
Við þetta gæti bæst hraun sem
runnið hefur til austurs frá Gíg-
öldum niður í Krepputungu (250
km2). Þar em stórdílótt hraun sem
líkjast Bárðardalshrauni.8 Hér verður
ekki fjallað um þau. Samkvæmt
útreikningum, sem verða að teljast
nokkuð varfæmir, er hraunið 8 km3
að stærð og 100 km langt.
Lengi var talið að Bárðardals-
hraun væri úr Trölladyngju komið.
Þorvaldur Thoroddsen var upphafs-
maður þeirrar skoðunar. Hann gekk
á Trölladyngju 13. ágúst 1884:
„Útsjónin suður á við var stórkostleg
og svipmikil, en naumlega mun geta
að líta frá einum stað yfir jafnstóra
spildu jafnljóta og hroðalega ...
Hraun hafa fallið úr Trölladyngju
ákaflega mikil til vesturs, en þó enn
meiri til norðurs ... Mesti straumur-
inn hefur fallið til norðurs út með
Dyngjufjöllum hinum vestari, alla
leið niður í Bárðardal og eftir honum
niður fyrir Þingey. Sá hluti þessa
mikla hrauns, er uppi á hálendinu
liggur, heitir Frambmni. Hraun þetta
allt er um þrjár þingmannaleiðir (110
km) á lengd og eitt hið mesta hraun
á landinu."9
I ritgerð sinni um Laxárgljúfur og
Laxárhraun tekur Sigurður Þórar-
insson undir skoðun Þorvaldar um
uppruna hraunsins en álítur það 105
km langt. Hann taldi það nokkm
eldra en H4, eða um 6500 ára, en
byggði þá skoðun á einu gjóskusniði
teknu hjá Goðafossi.10 Síðar breytti
hann skoðun sinni varðandi aldur-
inn þegar hann fann gjóskulagið H5
í jarðvegssniði á hrauninu 10 km
innan við Fosshól. Undir gjóskunni
voru 15 cm af jarðvegi og taldi hann
hraunið því a.m.k. 8000 ára.11,12
Aldursákvarðanir með hliðsjón af
jarðvegi og gjósku víðsvegar á
svæðinu frá Ljósavatnsskarði og
upp í Suðurárbotna sumarið 2003
gáfu til kynna að Bárðardalshraun
væri gamalt. Heklulögin H3 og H4
sjást víða, H5 hefur hins vegar ekki
fundist nema í þessu eina sniði
Sigurðar. Samanburður á þykkt
jarðvegs milli H3 og H4 annars
vegar og jarðvegsþykkt undir H4
hins vegar bendir til að hraunið sé
yfir 9000 ára. Gjóskan sem kennd er
við Saksunarvatn finnst undir því í
Barnafellsgljúfri. Vindrof hefur
valdið uppblæstri á hrauninu og í
rofsárunum sjást víða sérkennileg
sandlög ofan á því. Athugun leiðir í
ljós að þetta er mest vatnsflutt og
vindflutt efni sem runnið er saman í
hálfharða hellu. Sennilegast er að
þetta sé efni sem borist hefur með
jökulhlaupi ofan Bárðardal, yfir ungt
hraunið, fyrir um 9000 árum.
Hraunið og fljótið
Bárðardalshraun stíflaði Skjálfanda-
fljót við Hrafnabjörg og myndaði
langt og mikið lón sem þakti allar
Hafursstaðaeyrar og teygði sig inn í
Króksdal. Haukur Tómasson nefnir
þetta lón fyrstur jarðfræðinga og
160