Náttúrufræðingurinn - 2004, Side 75
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
6. mynd. Suðurá kemur upp í vatnsmiklum lindutn í Suðurárbotnum og rennur um
Útbrunahraun. Myndin er tekin vestur af Svartárkoti. - Suðurá river originates in the
large spring area Suðurárbotnar in the Útbrunahraun lava, issuing 10-15 tn3/s.
Ljóstn./Photo: ÁH.
kallar það Hafursstaðavatn.13 Fomir
vatnahjallar og aðrar strandmynd-
anir liggja meðfram hlíðunum
beggja vegna dalsins á þessum
slóðum og marka útbreiðslu lónsins.
Sléttur dalbotninn, sem fljótið
kvíslast um, er hinn fomi botn þess.
Mikill uppblástur og jarðvegsrof
hefur átt sér stað á umliðnum öldum
bæði á Hafursstaðaeymm og í hraun-
unum þar norður af enda hefur
vindurinn af óþrotlegu sandmagni að
taka úr hinu foma botnseti Hafurs-
staðavatns. Þegar hæst stóð í vatninu
var það um 17 km langt. Það var við
lýði í aldaraðir en Fljótið fann sér far-
veg milli hraunsins og Hrafnabjarga
og ræsti það hægt og hægt fram.
Bárðardalshraun hafði afgerandi
áhrif á Skjálfandafljót langleiðina
(eða alla leið) til sjávar. Það hrakti
það úr farvegi sínum og fyllti hann
svo fljótið varð að gera sér nýjan
farveg allt frá Hrafnabjörgum. Við
Tungumela flutti það sig vestur fyrir
melana og skildist frá Svartá á
löngum kafla. Aður en hraunið kom
til hafa Svartá og Suðurá að
líkindum runnið hvor í sínu lagi til
Fljótsins, Suðurá með ósa vestur af
Hátungum en Svartá við norður-
enda þeirra. Allir hinir nafntoguðu
fossar Bárðardals eru mótaðir í
hraunið. Þeir em svipaðir að hæð.
Áin hefur rofið burtu yfirborðs-
kargann sem víða er 6-8 m þykkur
en fellur svo fram af þéttasta kjama
þess. Goðafoss er 12 m (þ.e. vestari
og hærri fossinn), Ullarfoss er 11 m
(5 mynd) og Barnafoss (eystri
fossinn) er 10,5 m.
Athyglisvert er að Skjálfandafljót
rennur að mestu inni á hrauninu en
ekki milli hrauns og hlíða á leið sinni
niður Bárðardal. Þetta stafar af því
að hraunið stendur víðast hærra við
jaðrana meðfram hlíðum dalsins en
um miðbikið. Oft er þessu öfugt
farið um hraun í dölum þar sem þau
em hæst um miðbikið en lækka út til
jaðranna. Ástæðan fyrir rennsli
fljótsins á hrauninu er sú að í upp-
hafi eldsumbrotanna hefur hraun-
flæði verið ákaft niður dalinn en
síðan hefur dregið úr því; þá lækkaði
í hraunstrengnum í miðjum dal en til
jaðranna sat eftir storkið hraun frá
upphafsdögum gossins. Sjá má
sérkennilega kargagarða sem rekja
má langar leiðir meðfram hraun-
jöðrunum. Þessir garðar bera einnig
vott um hið mikla hraunstreymi í
fyrstu hryðjum eldsumbrotanna.
Lindir og lindár
Hraunin í Bárðardal hafa haft mikil
áhrif á vatnafar og breytt afrennslis-
háttum á þessum slóðum. Einkum
virðist Utbrunahraun hafa valdið
afgerandi breytingum á ám, lækjum
og lindum. Um þetta verður þó ekki
mikið fullyrt þar sem aðstæður þær
sem ríktu áður en hraunið rann
mega heita óþekktar með öllu. I dag
tengjast mikil lindasvæði Utbruna-
hrauni en þau eru Suðurárbotnar,
lindir við Svartárvatn og Krákár-
botnar. Svartárvatn hefur sennilega
ekki verið til fyrir hraungosið en
myndaðist í kvos austan við Bæjarás
er hraunið rann þar upp að. Svartá,
Suðurá og Kráká hafa orðið til í sinni
núverandi mynd við þennan atburð.
Vatnamælingar Orkustofnunar
hafa mælt rennsli Svartár við Ullar-
foss í vatnshæðarmæli sínum, vhm.
116, frá árinu 1965. Þar er um að
ræða sameinað rennsli Svartár og
Suðurár sem allt er lindavatn. Meðal-
rennsli árinnar er um 20 m3/s. Vatna-
sviðið er talið vera um 650 km2.14
Tvær heimarafstöðvar eru í Svartá,
önnur heima við Svartárkot, í út-
fallinu frá vahiinu. Hin stöðin er við
Ullarfoss í landi Víðikers.
Suðurárbotnar eru í hópi með
vatnsmestu lindasvæðum á Islandi.
Botnamir taka yfir um 6 km2 við svo-
kallaða Mótungu en hún afmarkast
af tveimur meginkvíslum Suðurár.
Hraun Aldur Flatarmál Þykkt Rúmmál
Lava Age Area ktn2 Thickness m Volume knt'
Kirtnarhraun 10.500 300 16 4,8
Utbrunahraun 10.300 85 12 1,0
Bárðardalshraun 10.000 444 18 8,0
2. tafla. Samanburður á hraunum - Cotnparison between the lavas.
161