Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 76

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 76
Náttúrufræðingurinn 7. mynd. Görnul rafstöð í Tungulæk hjá Stórutungu. - An old poiver station in the Tungulækur Brook. The brook originates in springs at the border of the Bárðardalur lava. Ljósm./Photo: ÁH. Svæðið er í um 430 m hæð yfir sjó. Lindimar koma upp úr sléttu Ut- brunahrauninu og ekki verður séð hvað veldur vatnsuppkomunni á þessum stað, hvorki em það sjáanleg þrengsli í hrauninu né lægð í landi. Sprungukerfi hulið hraununum gæti valdið þessu. Kinnarhraun liggur undir Utbrunahrauni þama og stingur kollinum upp úr því hér og þar. Lindimar gefa af sér 11-15 m3/s samkvæmt gögnum Vatna- mælinga Orkustofnunar. Lindahiti er 4,0- 4,5°C. Smærri lindir (0,3-0,4 m3/s) koma upp suður af Mikley neðar með ánni. Grunnvatnið sem kemur fram í Suðurárbotnum er líklega að stofni til úrkoma sem fellur á svæðið við norðanverð Dyngjufjöll en sumt af því gæti verið komið allt sunnan frá Vatnajökli. Ain fellur um Utbrunahraun vestan Svartárvatns og til Bárðardals og sameinast þar Svartá (6. mynd). Lindasvæði er við austanvert Svartárvatn og framhald þess í hrauninu niður með Svartá, suður og suðvestur af Svartárkoh. Flatarmál þess er um 2 km3. Afrennsli vatnsins er 3-4 m3/s en þar við bætist á að giska 1 m3/s niður með ánni. Auk þessara linda kemur Kráká upp í Krákárbotnum og Drápslækur í lindum austur af Svartárvatni. Allt þetta vatn kemur úr Utbrunahrauni. Lindir koma einnig upp í Bárðar- dalshrauni en þær eru allar mun smærri en lindirnar í Útbruna- hrauni. Við Aldeyjarfoss eru all- miklar lindir bæði í gljúfrinu við fossinn sjálfan og í Gilinu, sem er gamalt gljúfur sem áin hefur grafið í hraunið áður en hún hafði lokið við að móta gljúfrið við Aldeyjarfoss. Ekki hefur verið lagt nákvæmt mat á stærð þessara linda, enda torvelt þar sem eitthvað af vatninu kemur fram undir vatnsborði fljótsins, þó eru þama á ferð 0,5-1 m3/s. Lindahiti er 3,5-4,0°C. Bæjarlækurinn á Stórutungu (Tungulækur) er fallegur lækur sem kemur úr lindum við hraunjaðarinn irrn af bænum og fellur í fossun niður með bæjarhlaðinu. Þar em í honum tvær rafstöðvar, hvor upp af annarri. Sú eldri er frá 1927, smíðuð af Bjarna frá Hólmi, 12 kW (7. mynd). Hin stöðin er ögn neðar í læknum en hana lét Aðalsteinn bóndi í Stómtungu gera 1958,12 kW. Rennsli hans er 0,4-0,5 m3/s samkvæmt gögnum Vatnamælinga Orkustofnunar. Lækurinn fellur síðan niður með jaðri Bárðardals- hrauns og í Skjálfandafljót. 8. mynd. Itnyndað þversnið yfir hraunin við Ullarfoss í Svartá. - Visionary cross section in the lavas near Ullarfoss in Svartá river. 162

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.