Náttúrufræðingurinn - 2004, Side 85
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
fjárhag þess, í samræmi við við-
varandi aukna og almenna félags-
deyfð í landinu og samkeppni um
athygli landsmanna. Er ekki að sjá
að sú þróun muni snúast til betri
vegar á næstu árum. Við það bætist,
sem ekki er óskylt þessari þróun, að
erfiðara er að fá fólk til sjálfboða-
liðastarfa fyrir félagið. Jafnframt
hefur sú þróun orðið á aðstæðum á
vinnustöðum að torveldara er að
koma að almennu félagsstarfi á
vinnutíma, sem iðulega er þörf, og
kemur þetta allt niður á starfi
félagsins, að stjóm þess meðtalinni
og vinnuframlagi hennar. Gætti þess
greinilega, þegar stjórn félagsins
varð að bæta á sig störfum, eftir að
starf framkvæmdastjóra félagsins
var lagt niður á árinu áður.
Hefðbundin starfsemi félagsins
var af öllum þessum ástæðum
þróttminni en oft áður. Út kom heill
árgangur af Náttúrufræðingnum og
hefur útgáfa hans því ekki dregist
meira aftur úr í tíma. Sú eina
fræðsluferð sem farin var á vegum
félagsins (fimm daga ferð í Þjórsár-
tungur) lenti um sumt í handa-
skolum og mistökum í undirbúningi
og varð þátttaka með alminnsta
móti, þó að ferðin tækist annars vel
hvað fræðingu og ánægju þátt-
takenda varðar. Niður féll fræðslu-
erindi í febrúar og mæting á sum
önnur var dræm, en þar bætti þó úr
skák samstarf við Náttúrufræðistofu
Kópavogs um áhugaverð og fjölsótt
erindi, en 161 maður sótti erindi
Hjörleifs Guttormssonar um nátt-
úrufar á Eyjabökkum í Salnum í
Kópavogi í mars.
Það horfir því svo að félagið
verður annaðhvort að sníða sér
stakk eftir vexti og draga saman
starfsemi sína eða finna verður nýjar
leiðir til eflingar starfseminni, sem
þó ekki blasa við í svip.
Reikningar félagsins
Gjaldkeri félagsins, Kristinn Alberts-
son, gerði grein fyrir reikningum
félagsins og voru þeir samþykktir án
athugasemda. Velta félagsins var
tæpar 4 milljónir króna og lítils
háttar afgangur. Fé í sjóði var nærri
3V2 milljón króna en eignir taldar
rúmar 7 milljónir króna, með úti-
standandi skuldum og metnum
birgðum, sem eðlilega eru annað en
handbært fé. Er því fjárhagur
félagsins áfram heldur þröngur.
Argjöld voru áfram 3.600 kr. fyrir
einstakling, 4.200 kr. fyrir hjón (fá
eitt eintak af Náttúrufræðingnum)
og 2.400 kr. fyrir ungmenni (23 ára
°g yngri).
Skýrslur nefndafulltrúa
Lesin var skýrsla frá fulltrúa HIN í
Hollusturáði, Hákoni Aðalsteins-
syni, en þar hafði fátt stórt orðið til
tíðinda. Svipaða sögu hafði að segja
fulltrúi HIN í Dýraverndarráði,
Amór Þ. Sigfússon, nema hvað þar
koma jafnan leiðindamál um dýra-
meðferð fyrir.
Stjórnarkjör
Endurkjömir vom án mótframboðs
þeir Hilmar J. Malmquist og Hregg-
viður Norðdahl, en Guðrún Schmidt
gaf ekki kost á sér til endurkjörs og
var Helgi Torfason jarðfræðingur
kjörinn án mótframboðs í hennar
stað. Skoðunarmenn reikninga og
varaskoðunarmaður voru endur-
kjömir án mótframboðs.
ÖNNUR MÁL
Formaður HIN kynnti þrjár tillögur
til ályktunar frá stjóm HIN. Vom
þær ræddar og síðan samþykktar
einróma. Þær em eftirfarandi:
1) Alyktun um Náttúruminjasafn:
„Aðalfundur Hins íslenska nátt-
úrufræðifélags (HIN), haldinn 26.
febrúar 2001 í Reykjavík, skorar á
hlutaðeigandi stjómvöld að efna
sem fyrst á myndarlegan hátt til
sýningar- og kennslusafns á lands-
vísu um náttúmfræði (Náttúm-
minjasafns) í höfuðborg Islands,
Reykjavík, sem styðjist við vís-
indasafn Náttúrufræðistofnunar
Islands. Jafnframt verði eflt sýn-
ingar- og kennslusafn um náttúm-
fræði á Akureyri á sama gmnni."
2) Ályktun um kísilgúrnám í Mý-
vatni: „Aðalfundur Hins íslenska
náttúmfræðifélags (HÍN), haldinn
26. febrúar 2001 í Reykjavík, beinir
því til stjórnvalda og annarra
hlutaðeigandi aðila að nýta það
lag, sem nú hefur skapast við
ákvörðun um uppbyggingu kísil-
duftsverksmiðju í Mývatnssveit í
stað kísilgúmáms úr Mývatni, og
leggja af áform um kísilgúrvinnslu
í Syðri-Flóa, sunnan við Teiga-
sund. Nauðsynlegu lágmarksnámi
gúrs til örfárra ára verði frekar
sinnt á leyfðum svæðum í Ytri-
Flóa. Með þessu er svokallaðri var-
úðarreglu fylgt á eðlilegan hátt og
stuðlað markvisst að varðveislu
hins einstæða náttúrufars Mý-
vatns."
3) Ályktun um Þingvallavatn: „Aðal-
fundur Hins íslenska náttúru-
fræðifélags (HÍN), haldinn 26.
febrúar í Reykjavík, ítrekar álykt-
anir fyrri aðalfunda HÍN árin 1996,
1997, 1998, 1999 og 2000 um
vöktun lífríkis Þingvallavatns,
náttúrufar og vemdun vatnasviðs
Þingvallavatns með sérstakri
áherslu á eftirfarandi atriði:
- Komið verði sem fyrst á skipu
legri langtímavöktun á lífríki
Þingvallavatns.
- Þingvallasvæðið og vatnasvið
Þingvallavatns verði verndað á
viðeigandi hátt, þar sem litið sé
sérstaklega til einstaks lífríkis
Þingvallavatns, söguhelgi Þing-
valla og sjónarsviðs þeirra og stór-
merkilegs náttúrufars vatnasviðs
Þingvallavatns.
- Unnið verði viðeigandi kynning-
arefni um náttúmfar svæðisins og
það gert aðgengilegt gestum á
svæðinu og almenningi öllum."
Fræðslufundir
Að venju voru fræðslufundirnir
haldnir að kvöldi dags (kl. 20:30)
síðasta mánudag í mánuði hverjum
yfir vetrartímann. Fundimir voru
haldnir í Odda, Hugvísindahúsi
Háskólans, í Lögbergi (nóvember)
og í Salnum í Kópavogi (mars og
október, í samvinnu við Náttúru-
fræðistofu Kópavogs). Er hlutað-
eigandi húsráðendum þakkað fyrir
afnot húsnæðisins og hússtjómend-
171