Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2004, Side 88

Náttúrufræðingurinn - 2004, Side 88
Náttúrufræðingurinn samhengi er þama á milli, því að minna starf leiðir til minna framboðs af áhugaverðu efni eða atburðum af hálfu félagins, en það leiðir aftur til minni áhuga fólks á félaginu - og fækkunar í félaginu í kjölfarið. Því er aukin ástæða til að þakka því fólki sem leggur sitt starf af mörkum fyrir félagið, stjómarmönnum og starfs- mönnum, fyrirlesurum, ferðaleið- togum, fagráðs- og ritstjórnar- mönnum Náttúrufræðingsins og greinarhöfundum hans og öðmm þeim sem lagt hafa sitt lóð á vogarskál félagsins. Stjóm félagsins hefur fjallað um þann vanda sem að félaginu þrengir, en nokkuð ljóst virðist nú vera að ekki verði með hefðbundnum háttum eindurheimt sú foma frægð og góða gengi sem félagið naut á uppgangstímum sínum á áttunda og fram á níunda áratug liðinnar aldar, í ljósi sam- félagsþróunar síðari ára. Róttækra breytinga gæti verið þörf á gerðum og störfum félagsins til að rétta við hag þess og gengi, en þar er að sönnu ekki á vísan að róa. Reikningar félagsins Gjaldkeri félagsins, Kristinn Alberts- son, gerði grein fyrir reikningum félagsins og vom þeir samþykktir eftir umræður án athugasemda. Velta félagsins var um éVá milljón króna og afgangur hátt í eina milljón króna. Fé í sjóði var hátt í 5 milljónir króna og eignir alls metnar rúmlega 9 milljónir króna, með metnum birgðum og útistandandi skuldum. Em fjárhagstölur félagsins nokkm betri en fyrra ár, en þó er fjár- hagurinn enn nokkuð þröngur. Skýrslur nefndafulltrúa Fluttar vom skýrslur fulltrúa HIN í Dýravemdarráði, Amórs Þ. Sigfús- sonar, og fulltrúa HIN í Hollustu- háttaráði, Hákonar Aðalsteinssonar. Stjórnarkiör Kjörtími formanns, Freysteins Sig- urðssonar, var mnninn út og gaf hann ekki lengur kost á sér til kjörs. Auk hans gaf Guðrún Larsen ekki kost á sér til endurkjörs, en aðrir fráfarandi stjómarmenn gáfu þess kost. Formaður var að tillögu stjórnar einróma kjörin Kristín Svavarsdóttir plöntuvistfræðingur og að tillögu stjómar vom einnig einróma kjörin í stjóm Droplaug Ólafsdóttir líffræðingur og þeir Helgi Guðmundsson og Kristinn Albertsson, sem þar sátu áður. Skoðunarmenn reikninga voru einnig endurkjörnir, þeir Kristinn Einarsson og Tómas Einarsson, svo og sem varaskoðunarmaður Amór Þ. Sigfússon. Formannsskipti Fráfarandi formaður, Freysteinn Sigurðsson, þakkaði núverandi og fyrrverandi stjórnarmönnum fyrir samstarfið, svo og öllum þeim fjöl- mörgu sem unnið höfðu fyrir félagið, eða skift við það, í formanns- tíð hans, en hún varð alls tólf ár. Er það önnur lengsta formannsseta í sögu félagsins. Starfið fyrir félagið hafi oft verið mikið, en oftast þó ánægjulegt, enda unnið að göfugum markmiðum og góðum málefnum. Sá skuggi hafi þó hvílt á því starfi að nærfellt allan tímann hafi þurft að standa í vissri vamarbaráttu fyrir félagið, til að hamla eftir föngum gegn áhrifum óhagstæðrar þróunar í samfélagslegum viðhorfum og áhugamálum þjóðarinnar, einkum hin síðustu ár, sem hafi jafnt og þétt dregið mátt og megin úr félaginu og starfi þess. Þann róður treystist hann ekki lengur til að þreyta og hafi því ákveðið að ganga frá borði. Nú taki nýr formaður við að stýra fleyi félagsins um brim og boða þjóð- lífsins og óskaði hann hinum nýja formanni og félaginu sjálfu allra heilla, afls og gæfu við siglinguna á þeim ólgusjó. Nýkjörinn formaður, Kristín Svavarsdóttir, þakkaði fundar- mönnum það traust sem henni væri sýnt með kjöri til formanns í þessu fomfræga félagi. En vandi fylgi veg- semd hverri, og svo væri og með þessa, þó að eigi dygði annað en mæta honum með heilum huga og hressum. Fráfarandi formanni þakkaði hún störf lrans í þágu félagsins. Önnur MÁL Formaður HIN kynnti þrjár tillögur til ályktunar frá stjóm HIN. Vom þær ræddar og síðan samþykktar einróma. Þær em eftirfarandi: 1) Ályktun um Náttúruhús "Aðalfundur Hins íslenska nátt- úrufræðifélags (HÍN), haldinn 2. mars 2002 í Reykjavík, ítrekar fyrri ályktanir aðalfunda HÍN frá 24. febrúar 2001, 26. febrúar 2000, 27. febrúar 1999, 17. febrúar 1996, 11. febrúar 1995 og 29. febrúar 1992 um málefni Náttúmhúss (náttúru- minjasafns) á landsvísu í höfuð- borg Islands, Reykjavík. HIN harmar hve tregt hefur gengið að koma þessu brýna máli heilu í höfn og hvetur hlutaðeigandi aðila til að gera gangskör að því að efna hið fyrsta á myndarlegan hátt til sýningar- og kennslusafns í Reykjavík, sem styðjist við vísindasafn Náttúrufræðistofn- unar Islands. Jafnframt verði eflt sýningar- og kennslusafn um náttúmfræði á Akureyri á sama grunni." 2) Ályktun um vöktun á lífríki Þingvallavatns: "Aðalfundur Hins íslenska nátt- úmfræðifélags (HIN), haldinn 2. mars 2002 í Reykjavík, ítrekar fyrri ályktanir aðalfunda HÍN frá 24. febrúar 2001, 26. febrúar 2000, 27. febrúar 1999, 28. febrúar 1998, 1. mars 1997 og 17. febrúar 1996 um nauðsyn vöktunar á lífríki Þing- vallavatns og vemdunar á vatna- sviði Þingvallavatns með sérstakri áherslu á eftirfarandi atriði: - Komið verði sem fyrst á skipulegri langtíma vöktun á lífríki Þingvallavatns. - Þingvallasvæðið og vatnasvið Þingvallavatns verði vernduð á viðeigandi hátt, þar sem litið sé sérstaklega til einstaks lífríkis Þingvallavatns, söguhelgi Þing- valla og sjónarsviðs þeirra og stór- merkilegs náttúmfars á vatnsviði Þingvallavatns. 174

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.