Náttúrufræðingurinn - 2004, Síða 88
Náttúrufræðingurinn
samhengi er þama á milli, því að
minna starf leiðir til minna framboðs
af áhugaverðu efni eða atburðum af
hálfu félagins, en það leiðir aftur til
minni áhuga fólks á félaginu - og
fækkunar í félaginu í kjölfarið. Því er
aukin ástæða til að þakka því fólki
sem leggur sitt starf af mörkum fyrir
félagið, stjómarmönnum og starfs-
mönnum, fyrirlesurum, ferðaleið-
togum, fagráðs- og ritstjórnar-
mönnum Náttúrufræðingsins og
greinarhöfundum hans og öðmm
þeim sem lagt hafa sitt lóð á
vogarskál félagsins. Stjóm félagsins
hefur fjallað um þann vanda sem að
félaginu þrengir, en nokkuð ljóst
virðist nú vera að ekki verði með
hefðbundnum háttum eindurheimt
sú foma frægð og góða gengi sem
félagið naut á uppgangstímum
sínum á áttunda og fram á níunda
áratug liðinnar aldar, í ljósi sam-
félagsþróunar síðari ára. Róttækra
breytinga gæti verið þörf á gerðum
og störfum félagsins til að rétta við
hag þess og gengi, en þar er að
sönnu ekki á vísan að róa.
Reikningar félagsins
Gjaldkeri félagsins, Kristinn Alberts-
son, gerði grein fyrir reikningum
félagsins og vom þeir samþykktir
eftir umræður án athugasemda.
Velta félagsins var um éVá milljón
króna og afgangur hátt í eina milljón
króna. Fé í sjóði var hátt í 5 milljónir
króna og eignir alls metnar rúmlega
9 milljónir króna, með metnum
birgðum og útistandandi skuldum.
Em fjárhagstölur félagsins nokkm
betri en fyrra ár, en þó er fjár-
hagurinn enn nokkuð þröngur.
Skýrslur nefndafulltrúa
Fluttar vom skýrslur fulltrúa HIN í
Dýravemdarráði, Amórs Þ. Sigfús-
sonar, og fulltrúa HIN í Hollustu-
háttaráði, Hákonar Aðalsteinssonar.
Stjórnarkiör
Kjörtími formanns, Freysteins Sig-
urðssonar, var mnninn út og gaf
hann ekki lengur kost á sér til kjörs.
Auk hans gaf Guðrún Larsen ekki
kost á sér til endurkjörs, en aðrir
fráfarandi stjómarmenn gáfu þess
kost. Formaður var að tillögu
stjórnar einróma kjörin Kristín
Svavarsdóttir plöntuvistfræðingur
og að tillögu stjómar vom einnig
einróma kjörin í stjóm Droplaug
Ólafsdóttir líffræðingur og þeir
Helgi Guðmundsson og Kristinn
Albertsson, sem þar sátu áður.
Skoðunarmenn reikninga voru
einnig endurkjörnir, þeir Kristinn
Einarsson og Tómas Einarsson, svo
og sem varaskoðunarmaður Amór
Þ. Sigfússon.
Formannsskipti
Fráfarandi formaður, Freysteinn
Sigurðsson, þakkaði núverandi og
fyrrverandi stjórnarmönnum fyrir
samstarfið, svo og öllum þeim fjöl-
mörgu sem unnið höfðu fyrir
félagið, eða skift við það, í formanns-
tíð hans, en hún varð alls tólf ár. Er
það önnur lengsta formannsseta í
sögu félagsins. Starfið fyrir félagið
hafi oft verið mikið, en oftast þó
ánægjulegt, enda unnið að göfugum
markmiðum og góðum málefnum.
Sá skuggi hafi þó hvílt á því starfi að
nærfellt allan tímann hafi þurft að
standa í vissri vamarbaráttu fyrir
félagið, til að hamla eftir föngum
gegn áhrifum óhagstæðrar þróunar í
samfélagslegum viðhorfum og
áhugamálum þjóðarinnar, einkum
hin síðustu ár, sem hafi jafnt og þétt
dregið mátt og megin úr félaginu og
starfi þess. Þann róður treystist hann
ekki lengur til að þreyta og hafi því
ákveðið að ganga frá borði. Nú taki
nýr formaður við að stýra fleyi
félagsins um brim og boða þjóð-
lífsins og óskaði hann hinum nýja
formanni og félaginu sjálfu allra
heilla, afls og gæfu við siglinguna á
þeim ólgusjó.
Nýkjörinn formaður, Kristín
Svavarsdóttir, þakkaði fundar-
mönnum það traust sem henni væri
sýnt með kjöri til formanns í þessu
fomfræga félagi. En vandi fylgi veg-
semd hverri, og svo væri og með
þessa, þó að eigi dygði annað en
mæta honum með heilum huga og
hressum. Fráfarandi formanni
þakkaði hún störf lrans í þágu
félagsins.
Önnur MÁL
Formaður HIN kynnti þrjár tillögur
til ályktunar frá stjóm HIN. Vom
þær ræddar og síðan samþykktar
einróma. Þær em eftirfarandi:
1) Ályktun um Náttúruhús
"Aðalfundur Hins íslenska nátt-
úrufræðifélags (HÍN), haldinn 2.
mars 2002 í Reykjavík, ítrekar fyrri
ályktanir aðalfunda HÍN frá 24.
febrúar 2001, 26. febrúar 2000, 27.
febrúar 1999, 17. febrúar 1996, 11.
febrúar 1995 og 29. febrúar 1992
um málefni Náttúmhúss (náttúru-
minjasafns) á landsvísu í höfuð-
borg Islands, Reykjavík. HIN
harmar hve tregt hefur gengið að
koma þessu brýna máli heilu í
höfn og hvetur hlutaðeigandi aðila
til að gera gangskör að því að efna
hið fyrsta á myndarlegan hátt til
sýningar- og kennslusafns í
Reykjavík, sem styðjist við
vísindasafn Náttúrufræðistofn-
unar Islands. Jafnframt verði eflt
sýningar- og kennslusafn um
náttúmfræði á Akureyri á sama
grunni."
2) Ályktun um vöktun á lífríki
Þingvallavatns:
"Aðalfundur Hins íslenska nátt-
úmfræðifélags (HIN), haldinn 2.
mars 2002 í Reykjavík, ítrekar fyrri
ályktanir aðalfunda HÍN frá 24.
febrúar 2001, 26. febrúar 2000, 27.
febrúar 1999, 28. febrúar 1998, 1.
mars 1997 og 17. febrúar 1996 um
nauðsyn vöktunar á lífríki Þing-
vallavatns og vemdunar á vatna-
sviði Þingvallavatns með sérstakri
áherslu á eftirfarandi atriði:
- Komið verði sem fyrst á
skipulegri langtíma vöktun á
lífríki Þingvallavatns.
- Þingvallasvæðið og vatnasvið
Þingvallavatns verði vernduð á
viðeigandi hátt, þar sem litið sé
sérstaklega til einstaks lífríkis
Þingvallavatns, söguhelgi Þing-
valla og sjónarsviðs þeirra og stór-
merkilegs náttúmfars á vatnsviði
Þingvallavatns.
174