Náttúrufræðingurinn - 2004, Qupperneq 89
Tímarit Hins íslenska náttúrutræðifélags
-Unnið verði viðeigandi kynning-
arefni um náttúrufar svæðisins og
það gert aðgengilegt gestum á
svæðinu og almenningi öllum."
Fræðslufundir
Að venju vom fræðslufundir félags-
ins haldnir að kveldi dags, síðasta
mánudag í mánuði hverjum yfir
vetrartímann, svo sem verið hafði um
áratuga skeið, en fundir þessir höfðu
á þessu ári verið haldnir sem næst
reglulega í átta áratugi. Er ekki
léttvægt framlag félagsins með
fundum þessum til fræðslu þjóðar-
innar um náttúm landsins og nátt-
úrufræðileg efni. Fundimir voru
þetta ár haldnir í stofu 101 í Lögbergi,
húsi Háskóla Islands, og er
húsráðendum þakkað fyrir afnot af
húsnæðinu og aðstoð við fundar-
hald. Fundirnir voru auglýstir í
fréttabréfum HÍN og í dagskrár-
kynningum í fjölmiðlum. Þakkar
HIN fyrir þá fyrirgreiðslu.
Fyrirlesarar og erindi voru sem
hér segir:
29. janúar: Guttormur Sigbjamarson
jarðfræðingur: Þingvallavatn -
Langjökull. Fundinn sóttu 33
manns.
26. febrúar: Jóhann Óli Hilmarsson
formaður Fuglaverndarfélgsins:
Fuglalíf í Arnarnesvogi og
Skerjafirði. Fundinn sótti 41
maður.
26. mars: Þóra Ellen Þórhallsdóttir
grasafræðingur: Þjórsárver. Vin í
eyðimörkinni. Fundinn sóttu 59
manns.
28. maí: Ingibjörg Kaldal jarðfræð-
ingur: Saga Hálslóns. Fundinn
sóttu 28 manns.
29. október: Guðmundur Ómar Frið-
leifsson jarðfræðingur: Torfa-
jökulssvæðið, eitt mesta háhita-
svæði íslands. Fundinn sóttu 64
manns.
26. nóvember: Ólafur Ingólfsson jarð-
fræðingur: Náttúrufar á Suður-
skautslandinu. Þróun og breyting-
ar. Fundinn sóttu 82 manns.
Alls sóttu rúmlega 300 manns
þessa fundi og er það yfir fimmtíu
manns á fund að meðaltali, sem
verður að teljast vel viðunandi
fundarsókn.
Fræðsluferðir
Aðeins ein ferð var farin þetta árið,
Langa ferðin, á Fjallabak og í
Skaftárhrepp, 25.-29. júlí. Ferða-
skrifstofa Guðmundar Jónassonar sá
um skráningu í ferðina og í
gistingar, en farið var á bíl frá
Guðmundi Jónassyni hf. Er viðskift-
endum á fyrirtækjum þessum og
bílstjóra þökkuð einstök lipurð og
alúð í undirbúningi og framkvæmd
ferðarinnar. Stjórnarmenn höfðu
þessu sinni náð tökum á undir-
búningi ferðar og tókst hann með
ágætum. Félagið hefur nú í sex
áratugi farið árlega í skoðunarferðir
af þessum toga á sumri hverju.
Langa ferðin
Farið var fram og aftur um Fjallabak
(það er aðeins eitt, milli Mýrdals-
jökuls og Torfajökuls) og um
óbyggðir og sveitir í Skaftárhreppi.
Gist var fjórar nætur í Vík í Mýrdal
og gert út þaðan, en ferðast var á bíl
frá Guðmundi Jónassyni. Fararstjóri
og aðalleiðsögumaður var Frey-
steinn Sigurðsson, jarðfræðingur og
formaður HÍN. Var þetta tólfta
ferðin í röð sem hann undirbjó,
fararstýrði og hafði leiðsögn um, og
jafnframt sú síðasta í þeirri röð. Um
40 manns tóku þátt í ferðinni og
vom þeir mjög ánægðir með hana,
þó að bjartviðri og óraveguskyggni
væri lítið í henni.
Miðvikudag, 25. júlí, var lagt upp
um kl. 9 frá Umferðarmiðstöðinni í
Reykjavík og ekið sem leið liggur
austur á Rangárvelli, upp hjá
Keldum og upp á Laufaleitir, þar
sem hádegishlé var tekið við lindir
Laufalækjar í Laufahrauni undir
Laufafelli. Áfram var haldið yfir
Launfitarsand við Markarfljót,
Sátubotna, Torfalæk, Hvanngil og
Mælifellssand austur að Bryta-
lækjum og Hólmsárgljúfri, og
þaðan um Álftavatnskrók, ofan
Skaftártungu og yfir Mýrdalssand í
Vík, þangað sem komið var undir
kvöldmatarleytið. Veður var sæmi-
lega hlýtt, skýjað og lygnt en
ýringur annað veifið austan til.
Fimmtudag, 26. júlí, var lagt upp
um kl. 9 og farið upp um Skaftár-
tungu og Eldgjá inn að Langasjó,
þar sem tekið var hádegis- og
útsýnishlé. Þaðan var farið út fyrir
Sveinstind og gengið á útsýnisstað
yfir Skaftá, sunnan hans. Farið var
sömu leið til baka, niður um Eldgjá
og Hólaskjól og áfram til Víkur.
Veður var þurrt að kalla, en skýjað
og létt gola.
Föstudag, 27. júlí, var lagt upp
um kl. 9 og ekið austur yfir
Mýrdalssand, austur á Síðu og
Lakaleið upp að Laka, þar sem
tekið var hádegishlé og skoðuð
hraun og gígar. Áfram var haldið
um útsýnisstað á Stóraskeri, að
Tjarnargíg, sem var skoðaður, út að
Varmá og til baka sömu leið hjá
Fagrafossi og Fjaðrárgljúfri og svo
til Víkur. Veður var þurrt en skýjað
framan af degi, en væta undir
kvöld.
Laugardag, 28. júlí, var enn lagt
upp um kl. 9 og ekið austur á Síðu,
þar sem farinn var hringur um
Landbrot og Meðalland, um Leið-
völl, Eldvatn, Tröllshyl og Ófærugil
með hádegishléi. Þaðan var farið
austur Síðu hjá Dverghömrum og
austur að Hverfisfljóti, en svo til
baka vestur yfir Eldhraun með
útúrkróki að Fljótsbotni, hringferð
um Álftaver og aftur til Víkur.
Veður var þurrt en svalt og fjalla-
skýjað.
Sunnudag, 29. júlí, var lagt upp
um kl. 10 og farið austur um Mýr-
dalssand en síðan upp Öldufells-
leið, með hléi við Hólmsárfoss og
gegnt Öldufelli. Þaðan var farið
vestur Mælifellssand og ofan um
Emstrur og Grænafjall, litið á Mark-
arfljótsgljúfur og um Einhyrnings-
mörk og Fljótshlíð og komið árla
kvölds til Reykjavíkur. Veður var
þurrt að kalla en sólarlítið austan til
en væta vestan til.
ÚTGÁFA
Út kornu í einu hefti 2.-3. hefti 70.
árgangs Náttúrufræðingsins.
175