Náttúrufræðingurinn - 2004, Síða 90
Náttúrufræðingurinn
Önnur SÝSLAN
Komið var á formlegu samstarfi
umhverfisráðuneytisins og frjálsra
félagasamtaka á sviði umhverfis-
mála snemma ársins og var sam-
starfsyfirlýsing þar að lútandi undir-
rituð í Reykjavík 20. mars af
umhverfisráðherra og formönnum
11 félagasamtaka, þar á meðal HIN.
Haldnir voru í kjölfarið tveir sam-
ráðsfundir (8. júní og 14. nóvember)
þar sem fulltrúar umhverfisráðu-
neytisins skýrðu frá málum, sem eru
efst á baugi eða á döfinni hjá ráðu-
neytinu, en félagasamtökin komu á
framfæri áhugamálum sínum á
þessu sviði. Aðildarfélögin tilnefndu
svo sameiginlegan fulltrúa (Hilmar
]. Malmquist) í nefnd til undir-
búnings frumvarpi um endur-
skoðun laga um mat á umhverfis-
áhrifum.
Stjórn HÍN fjallaði um þings-
ályktunartillögu um tilnefningu
Eyjabakka sem Ramsar-votlendis
(janúar), um frumvarp til safnalaga
(janúar), um frumvarp til laga um
breytingar á lögum um náttúru-
vemd (gróðurvinjar á hálendi, maí),
um þingsályktunartillögu um eyð-
ingu villts minks og rannsóknir á
minkastofninum (maí), um fmm-
varp til laga um breytingar á lögum
um náttúmvemd (Náttúruvemdar-
ráð o.fl., nóvember), um drög að
reglugerð um mengaðan jarðveg.
Um hofundinn Póstfang höfundar
Freysteinn Sigurðsson (f. 1941) lauk Diplomprófi í Freysteinn Sigurðsson jarðfræði frá Háskólanum í Kiel í Þýskalandi árið 1974. Orkustofnun Freysteinn hefur starfað hjá Orkustofnun æ síðan, Grensásvegi 9 einkum við grunnvatnsrannsóknir, neysluvatnsrann- IS-108 Reykjavík sóknir og jarðfræðikortagerð. Hann var kjörinn fs@os.is formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags 1990 og gegndi því starfi til 2002.
176