Náttúrufræðingurinn - 1938, Blaðsíða 52
96 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
•iiiiiiiimiimiiiiiiimiimmmimiiiiiiiiiimimimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiimiiiiiiimiimiiimiiimiiiiimimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimii
Nýr fugl.
Hringþröstur. (Mannicke: Danmarks Fugleliv).
Náttúrufræðingurinn er hr. Ragnari Sigfinnssyni, Grímsstöð-
um við Mývatn, mjög þakklátur fyrir þær upplýsingar, sem hér
fara á eftir, og hann hefir góðfúslega sent ritinu:
„Dagana 2. og 3. maí 1936 sást hér fugl, er ekki hefir sézt hér
fyrri. Hélt hann sig hér um túnið og kringum það þessa tvo
daga, en hvarf síðan að fullu og öllu og sást ekki eftir það.
Fugl þessi var auðsjáanlega af þrastaættinni. Var hann mjög
líkur skógarþresti í öllum hreyfingum, en ofurlítið stærri, dökk-
ur (svartur) á lit (líkt og svartþröstur), nema lengstu flugfjaðr-
irnar, sem voru gráar — og mynduðu gráa rönd á hlið fuglsins,
er hann sat — og allstór, mjallahvítur blettur á brjóstinu. Var
bletturinn eins og hálfmáni í lögun og snéru oddarnir upp. Á
augabrúnum var ofurlítil Ijósgrá rönd. Nefið gult, einkum var-
irnar, en lit á fótum gat eg aldrei séð með vissu. Stélið var ekki
klofið og álíka langt og á skógarþresti. Röddin líktist rödd
skógarþrastar og steindepils, en var sterkari. Fugl þessi hélt sig
allmikið með skógarþröstum og leitaði fæðu á svipuðum stöð-
um og þeir, en var miklu styggari.
Tel eg víst, að þetta hafi verið hringþröstur (Turdus torqua-
tus). (Reyndar mundi eins rétt að kalla hann mánaþröst eftir