Náttúrufræðingurinn - 1938, Blaðsíða 35
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 79
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll■l■ll■llllllllll■lllllll■llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^llllllllllllllllllllllll>
vara mörullinn, en af honum hafa fundist leifar einmitt í Afríku.
Eftir nokkra milliliði, sem verið hafa afkomendur mörulsins,
komu hinir eignlegu fílar til sögunnar, fyrst í Indlandi, en
dreifðust þaðan norður á bóginn og til Afríku. Það, sem fór til
Afríku, varð seinna að sérstakri tegund, Afríkufílnum, en hann
er að því leyti frábrugðinn hinni tegundinni, sem nú er á lífi,
indverska fílnum, að skögultennurnar eru stærri, eyrun mun
stærri, og dýrið allt ýfið meira. Við strendur Afríku, og í ám
þeim, sem þar falla í sjó, þó einungis Atlantshafsmegin, er ein
tegund sækúa, en það er sú sama, sem einnig á heima við aust-
urströnd Suður-Ameríku. Á hinn bóginn er önnur tegund sæ-
kúa við vesturströnd álfunnar, með öðrum orðum Indlands-
megin, það er indverska sækýrin.
14. mynd. Shimpansi (Pan chimpanse). Hann er um 170 cm. á lengd.