Náttúrufræðingurinn - 1938, Blaðsíða 83
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 127
.........................................................
eineggja tvíburar geta fangið tannpínu í sömu tönn á sama tíma,
já, á sama degi og sömu klukkustund, og að þeir geta mætzt viö
sama hús í þeim tilgangi að brjótast inn í það á sama hátt til
að stela sama hlut, án þess að hvorugur hafi hugmynd um áform
hins aðilans fyr. Því að siíkt hefir komið fram við tvíburarann-
sóknir á glæpamönnum, sérstaklega hjá Large, Legras og Kranz.
Eitt hinna mörgu athyglisverðu dæma er á þessa leið: Við rann-
sókn kom í ijós, að í 30 tilfellum höfðu báðir komizt undir manna-
hendur, en aðeins annar í 13 tilfellum. Hjá tvíeggja tvíburapör-
um höfðu í 20 tilfellum báðum verið refsað, en í 39 aðeins öðr-
um. Og auk þess var tegund, aðferð og tíminn, sem glæpurinn var
unninn á, miklu líkari hjá þeim eineggja en tvíeggja, og jafnvel
eins og dæmið að framan segir. Rannsóknir ýmissa ætta hafa leitt
hið sama í ljós, svo að óhætt er að fullyrða, að til sé arfgengur
eiginleiki fyrir glæpahneigð. En það má þó ekki snúa bakinu við
þeirri staðreynd, að mikill hluti glæpa eru unnir vegna einhverra
misfella í uppeldi eða aðstæðum, en slíkum glæpum verður að halda
greinilega aðskildum frá glæpum þeirra vesalings manna, sem
hafa fengið þetta böl í vöggugjöf frá foreldrum sínum. Mönnum
með arfgenga glæpahneigð á aldrei að refsa, heldur á að hlúa að
þeim eins og hverjum öðrum sjúklingum, því að þeir ganga með
ættgengan sjúkdóm, sem er engu minna ægilegur en ættgeng geð-
veiki eða ættgengur vanskapnaður.
Þetta voru aðeins örfá dæmi af hinum ótal tvíburarannsóknum
erfðavísindanna. Af þeim er ljóst hið gífurlega gagn þeirra fyrir
tæknisfræði framtíðar og nútíðar og lögfræði allra ókominna daga.
Allir þeir vísindamenn, er við þessar rannsóknir fást víðsvegar
um í veröldinni, óska þess eindregið, að þær megi verða til að full-
komna læknisfræðina og bæta mannúðina í dómsmálum nútímans.
Þegar sá draumur þeirra er orðinn að fögrum veruleika um allan
hinn menntaða heim, er allt erfiðið við tvíburarannsóknirnar að
fullu og öllu borgað.
Svalöf, í ágúst 1938.
Áskell Löve.