Náttúrufræðingurinn - 1938, Blaðsíða 79
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 123
iiiiimiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiifiiiiiiimimmiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiimiimimmiiiiimiiiiiiiimiiiiiimiiiiiiiiiimiiiiimiiiiit
eggja, tilheyrðu ætíð báðir tvíburarnir sama blóðflokki og höfðu
sömu blóðeinkenni að öllu leyti. En hjá þeim tvíeggjuðu var sami
munur og meðal venjulegra systkina.
Af þessum og öðrum álíka rannsóknum er það svo örugglega
staðfest, að eineggja tvíburar eru ætíð eins að öllum erfðaeigin-
leikum sínum, að óhætt er að fullyrða, að mismunur tveggja ein-
eggja tvíbura stafar ætíð af einhverjum ytri áhrifum. Þau áhrif
geta auðvitað verið ýmiskonar. Til dæmis verkar vafalaust bar-
átta fóstranna um rúm og næringu í móðurkviði, eigi hvað minnst
breytandi á einstaklingana, og oft deyr annar þeirra þar eða við
fæðinguna. Við fæðinguna eru tvíburarnir venjulega litlir, annað-
hvort báðir eða annar. Eineggja tvíburar geta verið jafn misstórir
við fæðinguna og tvíeggja, en sá mismunur hverfur fljótt, er þeir
fara að vaxa og dafna. Og á skólaárunum eru tvíburar ekki lakari
en jafnaldrarnir, hvorki hvað andlegum né líkamlegum þroska
viðvíkur.
Flestir tvíburar eru í foreldrahúsum þar til þeir hafa lokið
skólagöngu sinni, svo að þar til eru hinar ytri aðstæður að mestu
leyti eins hjá báðum. Að skólaárunum loknum verða aðstæður
hinna tvíeggja oftar mismunandi en þeirra eineggja, því að hinir
síðari velja sér oft sama lífsstarf og búa jafnvel saman áfram.
Eineggja tvíburar hafa oftast sama smekk, þeir eiga sömu vini
og — verða oft ástfangnir af sömu persónu, en það getur oft leitt
til hinna mestu vandræða. Tvær eineggja tvíburasystur komust
þó hjá öllum slíkum vandræðum með því snjallræði, að giftast
bræðrum, sem voru líka eineggja tvíburar. Og síðan hafa þau
öll búið saman í sama húsi. Bæði hjónin eiga börn, sem eru í
raun og veru líffræðilega séð ekki frændur og frænkur, heldur
systkin. Feðurnir eru nefnilega eins frá sjónarmiði erfðafræðinn-
ar, og mæðurnar líka. Hjónaband milli systkinabarna er löglegt
víða um heim, en í tilfelli eins og þessu er hjónaband meðal barna
úr báðum f jölskyldunum varla leyfilegt, af því að slíkt væri í raun
og veru systkinagifting!
Annað skemmtilegt dæmi um eineggja tvíbura segir frá tveim
mönnum, sem voru vanir að gefa hvor öðrum afmælisgjafir hvert
einasta ár, — en allt af var gjöfin sú sama frá báðum. Eitt sinn
ákváðu þeir að leika hvor á annan og keyptu því í laumi hvor
sinn sjaldgæfa hlut. Svo kom afmælisdagurinn, báðir komu með
pakkana, en þegar þeir leystu utan af gjöfunum, voru þær —
nákvæmlega eins!