Náttúrufræðingurinn - 1938, Blaðsíða 26
70 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
iiiiimimimmmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiimimiiimiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiimiimiiimmmii
ið, að í Suður-Ameríku eru einnig strútfuglar, þar er hinn svo-
nefndi nandú, frekar smár vexti af strútfugli að vera, með þrem-
ur tám og flötu nefi. Hann á heima á sléttum Brazilíu, og á stepp-
unum í Argentínu og Patagóníu. Loks vil ég aðeins nefna einn
lítinn flokk fugla, hina svokölluðu tínamúa, einhverja þá frum-
legutsu fugla, sem nú á dögum eru til í heiminum, ef til vill ennþá
frumlegri en strútfuglana. Einnig þeir eiga heima í Suður-
Ameríku.
f Nýja ríkinu er mikið af skriðdýrum. Þar má nefna hinar
stóru kirkislöngur, sem kallast konungsslöngur, eða Boa. Eitur-
slöngur eru þar einnig, og mætti þar nefna skröltorminn, sem
svo er nefndur, vegna þess, að það skröltir í þurrum hornhylkj-
um á rófunni á honum, ennfremur kóralormana, sem eru jafn
fagrir eins og þeir eru eitraðir, með rauðum, gulum og svörtum
gjörðum. Af eðlum er mikið, og sömuleiðis af froskdýrum. Þar
eru til froskategundir, sem eru merkilegar vegna þess, hvernig
þær hjúkra afkvæminu. Hjá sumum þeirra ber kvenfroskurinn
eggin í grófum á bakinu, á meðan þau eru að klekjast, og svo
eru til tegundir, sem bera eggin í dálitlum poka undir kverk-
inni.
í vötnum og ám álfunnar, er fjöldinn allur af ýmis konar
vatnafiskum, en einkennilegt er það, að flestar þær vatnafiska-
tegundir, sem algengar eru í gamla heiminum, vantar með öllu,
en í stað þeirra koma margar aðrar, sem hvergi eru til annars
staðar. Merkastur allra þeirra vatnafiska, sem byggja vötn nýja
ríkisins, er án efa lungnafiskur sá, sem þar á heima. f Suður-
Ameríku er nefnilega ein þeirra þriggja tegunda lungnafiska,
sem til eru í heiminum. Einni höfum við kynnst í Ástralíu, en sú
þriðja verður fyrir okkur þegar urn Afríku verður rætt.
Áður en við segjum skilið við nýja ríkið, skulum við nú virða
fyrir okkur það helzta, sem menn þykjast vita um þróun þess á
umliðnum öldum. Yið skulum reyna að gera okkur ljóst, hvaðan
aðalstraumar dýrategundanna hafa legið til álfunnar, hvaða
dýraflokkar hafa orðið þar til, og hvert þeir hafa breiðzt þaðan.
Það skal tekið fram, að menn vita ekki mikið um það, hvernig
Suður-Ameríka hefir litið út á Miðöldinni í jarðsögunni, nema
á allra síðasta tímabili aldarinnar, á Krítartímanum. Þá hefir
mikill hluti álfunnar verið neðansjávar, en þó tvö mikil megin-
lönd staðið upp úr, annað, Brazilíuandið, þar sem Brazilía er
nú, en hitt, Chile-Patagóníulandið, þar sem nú er Chile og Pata-