Náttúrufræðingurinn - 1938, Blaðsíða 76
120 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
imiiiiimiimnmiiiiimimiiiiiimiiiiimimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimiiiimimiimiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiit
til fulls. Þá verða hinir „síamesísku tvíburar“ til, eða tvíburar,
sem eru vaxnir saman á litlum hluta líkamans. Og ef skiptingin
er enn ófullkomnari, verða til vanskapnaðir, sem deyja þegar á
fósturskeiði eða rétt eftir fæðinguna, allt eftir stigi skipting-
arinnar.
Tvíeggja tvíburar verða til, ef tvö egg losna samtímis frá egg-
legunum, og frjóvgast af tveim sáðfrumum. Þeir eru auðvitað
mismunandi að erfðaeiginleikum sínum og líkjast ekki meir en
venjuleg systkini, enda eru þeir í raun og veru aðeins jafngömul
systkin. Og þeir geta verið af ólíkum kynjum. Þekktustu tvíeggja
tvíburar eru líklega þeir Esaú og Jakob. Þeir voru ekki aðeins ó-
líkir ytra, heldur einnig í lund og öðrum andlegum eiginleikum.
Esaú var veiðimaður, ruddalegur, opinskár og vanstilltur, Jakob
var fjármaður, falskur, brögðóttur og hinn mesti hrekkjalómur og
óþokki.
Ef til vill er ekki úr vegi að nefna það, að af þeim löndum, er
birta skýrslur um tvíburafæðingar, hafa Norðurlönd hæsta hundr-
aðstöluna. I Noregi eru t. d. 1,47% allra fæðinga fleirburðir, í
Þýzkalandi er hundraðstalan 1,25, í Italíu 1,13 og enn lægri í
Grikklandi, Brasilíu og Japan. Og samkvæmt norskum skýrslum
fæddust á árunum 1921—’30 samtals um 550,000 börn. Af þeim
voru 8000 tvíburafæðingar, 70 þríburar og 3 fjórburar. Hinir
frægu kanadisku fimmburar eru einstakir í sinni röð; eins og
mönnum er kunnugt, eru það allt stúlkur, sem lifa að því er virð-
ist ágætis lífi undir stjórn læknis.
Engin rök mæla gegn því, að þríburar geti verið eineggja. Á
fyrstu stigum fóstursins getur fósturvísirinn fyrst skipzt í tvennt,
og annar helmingurinn síðan skipt sér strax á eftir. Þannig verða
til þrír nákvæmlega eins einstaklingar. En allir þríburar eru ekki
eineggja. Þeir geta orðið til úr þrem eggjum, sem losna samtímis
frá eggleginu og frjóvgast af þrem sáðfrumum, eða þeir geta verið
úr tveim eggjum, þannig, að annað hefir skipt sér í tvennt, en hitt
þróazt óskipt áfram. — Hjá fjórburum verður auðvitað allt enn
flóknara, en sömu reglur gilda auðvitað líka þar.
Af rannsóknum tveggja norskra kvenna, prófessors Kristínar
Bonnevie og dr. Áslaugar Sömme, sem hafa athugað tvíburafæð-
ingar innan fjölmargra, stórra ætta, er fullsannað, að að minnsta
kosti tvíeggja tvíburafæðingar eru ættgengur eiginleiki, eða með
öðrum orðum, mæðurnar hafa ættgenga hneigð til þess, að tvö
egg losni samtímis frá eggleginu.