Náttúrufræðingurinn - 1938, Blaðsíða 64
108 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
.iimmmmimmiiiimimiiimmiimimimiiiimiiiiiiimiimimiiiiiimiiiiimiiiimiiiiimmiiiiiimimimiiimiiiiiiiimitiiiiiiiii
Lýr fundinn við ísland.
Meðal fiskaheitanna í Skáldskaparmálum Snorra Eddu er
„lýr“. Það heiti hefir frá fornu fari verið alkunnugt við Noreg
á fiski, sem ber þar enn nafnið 1 y r eða 1 y r t o r s k, eins og hann
líka er nefndur á sænsku, en á dönsku er hann nefndur Lubbe
og Pollack á ensku. Þetta er þorsktegund, sem er mjög tíð við
England og sunnanverðar Bretlandseyjar yfirleitt, tíð við sunnan-
Lýr. (Danmarks Fauna.)
verða vesturströnd Noregs, en sjaldgæfari lengra suður og norð-
ur með Noregi er hann ekki fyrir norðan Lófót. Hann er ekki við
Ameríku, en nafnið Pollack eða Pollock er þekkt þar, en er nafn
Ameríkumanna á ufsanum. Vísindanafn hans er Gadus pollachius.
Fiskur þessi, lýrinn, hefir hingað til aldrei sést eða veiðst
hér, svo víst sé1), fyrri en síðastliðinn vetur, er einn fullvaxinn
fékkst í botnvörpu á togaranum „Júní“ í Hafnarfirði 7. marz, á
vestanverðum Selvogsbanka (eins og getið var um í útvarpinu),
og var vissan um það að þakka Jóngeir Davíðsyni, háseta á
„Júní“; hann hugði fiskinn vera ufsa, en svo athugaverðan í út-
liti, að hann símaði mér lýsingu á honum og sendi mér hann sam-
kvæmt beiðni minni, þar sem mig grunaði, að hér væri um ann-
1) Jónas Hallgrímsson getur þess í ritum sínum, að veiðst hafi í Fjalla-
sjó fiskur, sem hann, eftir lýsingu manna að dæma, hyggur að hafi verið
þessi fiskur, sem hann, vegna litarins, vildi nefna „gullufsa", en var ekki
kunnugt um hið fornnorræna nafn hans.