Náttúrufræðingurinn - 1938, Blaðsíða 49
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 93
iiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiHiiiiimimiiiiiiiiiiiiiii
dreifzt suður á bóginn, nú er aðalheimkynni þeirra í Suður-Ame-
ríku, annars staðar eru þeir ekki til, nema hvað einstöku teg-
undir hafa slæðzt yfir landamærin til Norður-Ameríku, eins og
til þess að sjá þann stað, þar sem vagga þeirra stóð til forna. En
björnunum varð meira ágengt. Þeir komust brátt til Suður-
Ameríku og gamla heimsins, og dreifðust um hann allan, nema
suður fyrir Sahara hafa þeir aldrei komizt, né heldur til Ástral-
íu. Um kattaættina er miklu minna kunnugt. Eftir öllum mörk-
um að dæma, hefir þróun þeirra byrjað í Evrópu, en þaðan hafa
þeir dreifzt um víða veröld. Margir verða ef til vill hissa á því,
að margar og miklar ættir dýra, sem nú eiga aðallega heima
í heitu löndunum, skuli hafa orðið til og þróazt fyrst í stað í
norðlægum löndum, en í því sambandi verðum við að minnast
þess, að á Nýju öldinni, áður en Ístíminn skall á, hefir loftslag
hér nyrðra verið miklu heitara en nú er.1) Þótt sagan um þróun
tegundanna, ættanna og flokkanna virðist lítið koma við út-
breiðslu tegundanna nú á dögum, verður þó að taka það með í
þessu sambandi, af því að við verðum einmitt að ganga út frá
þróun tegundanna sem grundvelli, því annars verður útbreiðsla
þeirra nú á dögum ekki skilin.
Meðal einkennisdýra Norðursvæðisins, eru selirnir. Það er al-
mennt álitið, enda þótt um það séu þó nokkuð skiptar skoðanir,
að selirnir séu afkomendur frumlegra rándýra, skyldir hund-
unum, en hvað sem því líður, má hiklaust fullyrða, að rándýr
eru þeir, rándýr, sem hafa vanizt á að lifa í sjónum, og lagazt
eftir því. Tegundaf jöldinn er frekar lítill, en einstaklingamergð
er allmikil. Selirnir lifa við allar strendur Norðursvæðisins í
sjó, en sumar tegundir lifa einnig í vötnum gamla heimsins,
Kaspiskahafinu, Aralvatni og Bajkalvatni, þangað hafa þeir
komizt þegar vötnin fyrr á öldum stóðu í sambandi við hafið
meir en nú er. Hinir eiginlegu selir eru mjög algengir allsstaðar
við strendurnar, þó einkum við Atlantshafsstrendurnar, en við
Kyrrahafsströnd Norður-Ameríku eru eyrnaselimir, og við ís-
hafsstrendurnar lifir, eins og kunnugt er, rostungurinn, sem er
allskyldur eyrnaselunum.
Merkilegt er svæðið vegna hófdýra þeirra, sem þar finnast,
og leifum þeim, í jarðlögunum, sem bera vott um hófdýralíf lið-
inna tíma. í Norður-Afríku og Asíu, er talsvert af ösnum. Alls
1) Árni Friðriksson: Aldahvörf í dýraríkinu.