Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 24

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 24
hafa fundist fimm gjóskulög (Tvl-Tv5) sem eru 10.800-6000 ára gömul (Björck o.fl. 1992). Samkvæmt ald- ursgreiningum (C-14) er aldur næst- efsta lagsins, Tv-4, um 8900 ár. El'na- greiningar á þessu lagi eru sambæri- legar efnagreiningum á lögunum úr Sogamýri (sjá 2. mynd) og er ekki ólíklegt að það samsvari öðru þeirra. SOGAMÝRI/SAKSUNARVATN í Saksunarvatni í Færeyjum fannst fyrir nokkrum árum dökkt gjóskulag sem samkvæmt aldursgreiningu (C-14) reyndist vera 9100 ± 100 ára gamalt og eru upptök þess ætluð vera á Islandi (Mangerud o.fl. 1986). í meðfylgjandi töflu eru borin saman helstu einkenni gjóskulagsins úr Saksunarvatni og Sogamýrarlaganna og á 2. mynd sést hvar það lendir á FeO'/Ti02-grafi miðað við Sogamýrarlögin og gjósku- lagið Tv-4 í Torfadalsvatni. Eins og fram kemur í töflunni eru útlitsein- kenni, efnasamsetning og aldur gjósku- laganna mjög sambærileg. Greinileg frávik koma þó fram í hlutföllum kísils (SiO,) og áls (A1203) í neðra laginu í Sogamýri miðað við hin lögin. Telja verður að hér sé um marktæk frávik að ræða. Einnig kemur fram að Saksunarvatnsgjóskan er heldur fínni en efra lagið í Sogamýri, sem hlýtur að teljast eðlilegt ef gert er ráð fyrir upptökum á íslandi. Út frá þeim athugunum sem hér hafa verið gerðar má draga þá ályktun að efra gjósku- lagið í Sogamýri, fremur en það neðra, samsvari gjóskulaginu í Saks- unarvatni. UMRÆÐA Um útbreiðslu og þykktardreilingu Sogamýrarlaganna tveggja er ekkert hægt að segja með vissu, þar sem nægjanleg gögn eru ekki fyrir hendi. Þó er ljósl að útbreiðsla þeirra hlýtur að vera mikil séu upptökin í Kverk- ijöllum eða Grímsvötnum, eins og hér hafa verið leiddar líkur að. A nokkrum stöðum hérlendis hefur á síðastliðnum árum greinst gjóskulag/-lög neðst í jarðvegi eða efst í seti frá síð- jökultíma sem samsvarað gæti gjósku- lögunum í Sogamýri. I nokkrum til- vikum hefur gjóskulag verið tengt Saksunarvatnsgjóskunni. Nefndar skulu hér helstu heimildir í þessu sanibandi. Á Norðurlandi er víða dökkt gjósku- lag neðst í jarðvegssniðum sem hugsanlegt er að tengist gjóskulaginu í Saksunarvatni (Halldór G. Pétursson og Guðrún Larsen 1992). Einnig hefur fundist gjóskulag á Austurlandi, skammt norður af Egilsstöðum, sem tengt hefur verið gjóskunni í Saksunar- vatni (Hunt 1992). I síðjökultímaseti á Hornströndum hefur fundist vatnsflutt basísk gjóska sem talin er um 9000 ára gömul (Hjort o.fl. 1984). Þetta gjóskulag hefur nýlega verið tengt gjóskulaginu í Saksunarvatni (Björck o.fl. 1992). Efst í leirlagi frá síðjökultíma í Grímsnesi, við Ásgarðslæk, hefur fundist gjósku- lag sem líklega samsvarar efra gjósku- laginu í Sogamýri (Magnús Á. Sigur- geirsson, óbirt gögn). í lónlyllu í Torfalóni á Markarfljóts- öræfum eru tvö dökk gjóskulög með stuttu millibili í henni neðanverðri (Ingbjörg Kaldal og Elsa G. Vil- mundardóttir 1983). Gjóskulögin liggja skammt neðan mólags sem samkvæmt aldursgreiningu er um 8000 ára gamalt. Efnasamsetning þessara laga er ekki þckkt en aldur og innbyrðis afstaða er svipuð og hjá Sogamýrarlögunum. I Búðarhálsi, skammt vestan Þóris- vatns, eru hjallar og skaflar úr gjósku- ríkum sandi sem taldir eru hafa myndast þegar ísaldarjökullinn var að hörfa á þessum slóðum (Ingibjörg Kaldal 1993). Efnagreiningar benda til 134
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.