Náttúrufræðingurinn - 1993, Síða 80
2. tafla. Gróf flokkun nokkurra algengra storkubergtegunda eftir kísilinnihaldi og kornastærð.
Kornastærð Kísilinnihald (%SiOJ <45 45-52 52-65 >65
útbasískt basískt ísúrt súrt
stórkornótt >1 mm perídótít gabbró díórít granít
smákornótt 0,05-1 mm dólerít nn'kró-díórít granófýr
dulkornótt < 0,05 mm basalt íslandít ríólít
Flokkun bergs eftir kísilinnihaldi og
kornastærð er ófullnægjandi. Til þess
að vita hvort berg er súrt, ísúrt eða
basískt þarf að efnagreina það með
tilliti til kísils. Með öðrum orðum er
ekki unnt að skera úr um hvaða flokki
berg tilheyrir með skoðun á handsýni
eða athugun úti við. Réll er að líta á
flokkun bergs eftir kísilinnihaldi sem
lauslega viðmiðun og að mörk þau
sem sýnd eru í 2. töflu séu sveigjanleg
að nokkru leyti. Greining bergs í súrt,
ísúrt og basískt með skoðun á hand-
sýnum byggist á reynslu en ekki því
að jarðfræðingar læri að sjá kísil-
innihald bergs með berum augum!
Steindir í storkubergi
Steindum í storkubergi hel'ur verið
skipað í tvo meginhópa eftir uppruna,
frumsteindir og ummyndunarsteindir.
Þær fyrrnefndu myndast um leið og
storkubergið verður til við storknun
kviku. Ummyndunarsteindir myndast
hins vegar síðar, aðallega fyrir áhrif
vatns sem fer um bergið og leysir upp
frumsteindirnar en myndar um leið
ummyndunarsteindir við útfellingu. í
sumu storkubergi er ekkert eftir af
frumsteindunum en samt má oft þekkja
uppruna bergsins á ásýnd þess og
efnasamsetningu, en við uppleysingu
frumsteinda og útfellingu ummynd-
unarsteinda vcrða í flestum tilfellum
litlar eða hverfandi breytingar á
efnasamsetningu storkubergs.
Frumsteindir í öllu algengu storku-
bergi eru liltölulega fáar. Þær al-
genguslu eru eftirtalin silíköt: ólivín,
pýroxen, hornblendi, glimmer, feld-
spöt. Af feldspötum eru tveir meg-
inflokkar, plagíóklas annars vegar og
alkalífeldspat hins vegar. Eins eru tveir
meginflokkar pýroxena, ágít og orþó-
pýroxen. Þá er kvars algeng steind í
sumu súru storkubcrgi. Þrjár fyrst-
nefndu steindirnar, ólivín, pýroxen og
hornblendi, eru oft kallaðar dökkar
steindir eða járn-magnesíum-steindir,
en tvær þær síðastnefndu ljósar steind-
ir. Glimmer er ýmist dökkt eða ljóst.
Ljóst glimmer nefnist múskóvít en
dökkt bíótít. í basísku bergi er liltölu-
lega mikið af dökkum steindum, um
eða yfir 50%. Því er kristallað basískt
berg dökkt á litinn. Sumt útbasískt berg
er eingöngu gert af dökkum steindum.
Eftir því sem magn kísilsýru í storku-
bergi vex minnkar hluli dökku steind-
anna og hlutur þeirra ljósu vex að sama
skapi. I súru bergi eru Ijósu steindirnar
yfirleitt um eða yfir 90%. Því er súrt
kristallað berg Ijóst á lit.
A 7. mynd er sýnt hvernig hHít-
fallslegt magn og tegundir steinda
breytast frá útbasísku bergi yfir í súrt.
Efnasamsetning steindanna breytist um
leið eins og sýnl er í 3. töflu.
190