Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 84

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 84
bergtegundanna, uppruna kvikunnar og þau ferli sem hafa áhrif á efna- samsetningu kvikunnar. Þá er öllti kristölluðu bergi með sömu efnasam- setningu skipt niður eftir kornastærð, yfirleitt í þrjá flokka, í duikornótt, smákornólt og stórkornótt berg (sjá 2. töflu). Þessi skipting eftir kornastærð er loðin, enda fullkomin skörun milli allra flokkanna. Sé berg dulkornótt er ekki gerlegt að greina sundur steindir með berum augum eða stækkunargleri. í smákornóttu bergi má sjá aðgreind korn en þau eru ekki nógu stór til þess að þekkjast með stækkunargleri. í grófkornóttu bergi má þekkja einstakar steindir með berum augum. Storkuberg getur verið ókristallað með öllu. Slíkt berg kallast glerkennt. Þegar um stórkornótt og smákornótt berg er að ræða er flokkun yfirleilt byggð á steindum en á efnagreiningum við flokkun á dulkornóttu og gler- kenndu bergi. Hér er þó alls ekki um aðskilin ílokkunarkerfi að ræða. Efna- greiningar á dulkornóttu og glerkenndu bergi eru notaðar til þess að reikna út hvaða steindir hefðu myndast ef kvikan hefði storknað nægilega hægt til að mynda stóra kristalla. Korn þau sem steindir mynda við kristöllun berg- kviku verða því stærri sem storknunin er hægari og seigja kvikunnar minni. Hvaða steindir myndast, innbyrðis hlutfall þeirra og efnasamsetning ræðst af efnasamsetningu kvikunnar. Slorkni bergkvika með ákveðna efnasamsetningu mjög hægt myndast alltaf sömu steindirnar og þær hafa líka sömu efnasamsetningu. Það sem hér er átt við með „mjög hægri“ storknun er í raun og veru að tími sé nægur til að viðhalda efnajafnvægi ntilli steinda og kviku gegnum allt storknunarferlið. Þessu er ekki þannig varið þegar storknun er tiltölulega hröð, eins og hún er t.d. á yfirborði jarðar. Þó myndast yfirleitt sömu steindirnar og við hæga storknun en samsetning þeirra er breytileg. Yfirleitt breytist samsetning einstakra korna reglulega frá miðju og út til jaðranna. Sá hluti hvers korns sem liggur í miðju þess hefur myndasl við upphaf kristöllunar en ystu jaðrar við lok kristöllunar. Af þessu sést að erfitt getur reynst að byggja flokkun á steindum í dulkorn- óttu bergi, jafnvel smákornóttu, þótt gerlegt sé að greina steindirnar með smásjárathugun. Þess vegna er flokkun byggð á efnagreiningu markvissari. Ekki er mögulegt að fella flokkun á öllu storkubergi inn í eina mynd eða töflu. Til þess er breytileiki í efna- og steindasamsetningu of mikill. Af þessum sökum hefur storkubergi gjarn- an verið skipt niður í nokkra hópa þar sem ákveðið flokkunarkerfi er notað innan hvers hóps. Því miður hefur engin ákveðin skipting í hópa enn hlotið almenna viðurkenningu. A 7. mynd er sýnl hvernig storkuberg, þar sem kísill er yfir markmettun (critical silica saturation), er flokkað í samræmi við steindir í berginu og efnasam- setningu þessara steinda og gildir þá einu hvorl um raunverulegar steindir er að ræða eða steindir reiknaðar út frá efnagreiningum. Mettunarástand storkubergs með tilliti til kísils ræðsl af magni þessa efnis miðað við ýmis önnur, eins og natríum og kalí. Ef berg er yfirmetlað er meira en nægur kísill lil þess að binda allt natríum og kalí í alkalífeld- spötum, sem hafa formúluna NaAlSi.Cý og KA1Sí308, og afgangskísillinn myndar kvars. I bergi sem er undir kísilmarkmettun myndast kísilsnauðar natríum- og kalísteindir, svonefndir feldspatíðar, en nefelín, sem hel'ur formúluna NaAlSiO^, er þeirra algeng- astur. Með því að bera saman formúlu nefelíns og Na-feldspats sést að í 194
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.