Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 92
er oftast straumflögótt og þegar slegið
er á það með hamri, eða tveim flögum
slegið saman, klingir gjarnan í og má
oft þekkja bergið á þessu einkenni og
straumflöguninni. Dasít er til allvíða,
svo sem við Lúdent í Mývatnssveit og
í Hálsasveit inn af Reykholtsdal í
Borgarfirði.
Díórít
Díórít er stórkornótt, ísúrt berg. Það
er óalgengt hér á landi. Þekktasti
fundarstaðurinn er í Lýsuskarði ofan
við Lýsuhól á sunnanverðu Snæfells-
nesi. I díóríti erlendis eru algengustu
steindirnar plagíóklas og hornblendi en
steindasamsetning díórítsins í Lýsu-
skarði er nokkuð önnur. Af þeim
ástæðum væri ástæða til þess að gefa
því annað nafn, þólt það hafi ekki
verið gert, líkt og ísúrt dulkornótt berg
á Islandi hefur verið nefnl íslandít í
stað andesíts vegna þess að steinda-
samsetning þessara tveggja ísúru dul-
kornóttu bergtegunda er talsvert ólík.
Dólerít
Dólerít er smákornótt basískt berg og
hefur sömu einkennissteindir og basalt.
Ferskt er það Ijósgrátt en ummyndun
gerir það dekkra eins og basalt.
Bandarískir jarðfræðingar hafa notað
orðið díabas yfir smákornótt basískt
berg. Aðrir leggja þá merkingu í orðið
díabas að það tákni ummyndað
dólerít.
Flikruberg
Flikruberg er súrt berg sem myndast
í svonefndum freyðigosum. Slíkurn
gosum var lýst í kaflanum um ásýnd
storkubergs hér að framan. Flikruberg
þekkist á flikrunum í því, sem eru hálfs
til eins sentímetra stórir, útflattir molar
í millimassa úr glerkenndu efni. I
flikrubergi er oft mikið af framandi
bergbrotum sem vafalítið hafa brotnað
úr veggjum gosrásarinnar. Ferskt
flikruberg er ljóst á lit, eins og ríólít,
en það getur orðið rautt eða grænl
fyrir áhrif ummyndunar.
í freyðigosum aðskiljast gas og
kvika í gosrásinni og andrúmsloftinu,
án þess að sprengivirkni verði, og úr
verður mjög þunnfljótandi blanda þar
sem kvikan myndar flyksur eða flikrur
umluktar gasi. Þegar þessi þunn-
fljótandi blanda sest til afgasast hún og
flikrurnar leggjast saman og fletjast út
undan farginu sem á þeim hvílir, enda
hafa þær ekki náð að storkna.
ÖII millistig eru til milli öskulaga og
flikrubergslaga annars vegar og milli
hraunlaga og flikrubergslaga hins
vegar. Þannig geta flikrur runnið
saman í eina storku í miðju þykkra laga
og bergið jafnvel orðið stuðlað, þótt
efsl og neðst í sama lagi séu flikru-
bergseinkennin greinileg. Eins geta
miðjur einstakra laga verið með flikr-
unt en efsti og neðsti hluti þeirra eins
og túff, þ.e. harðnað öskulag.
Flikruberg er allvíða að finna hér á
landi. Þekktir fundarstaðir eru við
Húsafell í Borgarfirði og í Berufirði á
sunnanverðum Austfjörðum.
Gabbró
Gabbró er stórkornótt basískt berg og
hefur sömu einkennissteindir og basalt.
Ólivín er óalgengara í því en í basalti
og dóleríti. Yfirleitt er auðvelt að
þekkja aðalsteindirnar í gabbrói í
handsýni og á sömu einkennum og dfla
í basalti. Ólivín, sé það til staðar,
getur verið rautleitt á litinn vegna
ummyndunar.
Hlutföll aðalsteinda í gabbrói geta
verið talsvert breytileg. Stafar það af
sökki kristalla í bergkviku þeirri sem
gabbróið myndaðist úr og veldur því
að sumt gabbró er liltölulega ljóst en
annað nær svart. Um þetla var sér-
staklega rætt í kaflanum um jarð-
202