Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 22
1. mynd. a) Einfölduð skýringarmynd af núverandi segulsviði jarðar (Leó Kristjánsson
1985). NP og SP: norður- og suðursnúningspólar jarðar. S: jarðsegulskaut á norðurhveli
jarðar (kraftlínur segulsviðs stefna niður, inn). N: jarðsegulskaut á suðurhveli jarðar
(kraftlínur segulsviðs stefna út, upp). b) og c) Halli segulnálar á yfirborði jarðar við
„rétt“ og „öfugt“ segultímabil.
5 milljón ár. Þessar rannsóknir munti
að öllum líkindum leiða af sér
nákvæmt tímatal sem jarðsögulegar
breytingar á íslandi síðustu 15 milljón
ár verða miðaðar við.
SEGULSVIÐ JARÐAR OG
SEGULSKIPTI
Jörðin myndar um sig segulsvið með
skaut nálægt norður- og suðurpól,
svonefnd jarðsegulskaut. Þótt segul-
skautin hreyfist þykir sýnt að þau hafi
ávallt haldið sig nálægt núverandi
norður- og suðurpólum jarðar (snún-
ingspólunum). Nyrðra jarðsegul-
skautið er á Norðvestur-Grænlandi
(78°30’N, 70°V) en það syðra á Suð-
urskautslandinu (78°30’S, 110°A). Ás-
um segulsviðsins hallar því um 11,5°
frá snúningsásum jarðar (sjá 1. mynd
a). Kringum nyrðra jarðsegulskautið
stefna kraftlínur segulsviðsins norður
og niður (inn) en norður og upp (út)
við syðra jarðsegulskautið. Til skýr-
ingar á eiginleikum segulsviðs má
hugsa sér einfalda segulnál um borð í
skipi sem siglir um heimshöfin. Hall-
inn er mestur nálægt jarðsegulskautun-
um en nær láréttu í 90° fjarlægð, þ.e.
við segulmiðbaug sem er ekki allfjarri
miðbaugi jarðar. Við segulmiðbaug
er styrkleiki segulsviðsins minnstur en
um tvöfalt meiri við jarðsegulskautin,
þar sem hann er mestur.
Það hefur oft gerst í sögu jarðar að
styrkleiki segulsviðsins hefur minnkað
og kraftlínur þess síðan snúist við.
Þetta ferli nefnist segulskipti og eru
ástæður þess lítt kunnar. Með segul-
skiptum er átt við að í stað þess að
kraftlínur stefni út (upp) frá suður-
segulskauti og niður í norðursegul-
skaut hafi þessu í fyrndinni oft verið
öfugt háttað (1. mynd b og c). Talað
er um að nú sé segulsvið jarðar rétt
en að fyrir síðustu segulskipti hafi
það verið öfugt. Segulskipti taka um
5000 ár, sem er örstuttur tími á kvarða
jarðsögunnar. Talið er að segulsviðið
hafi síðast snúist fyrir um 30.000 árum
(Peirce og Clark 1978). Segulskipti
hafa reynst afar mikilvæg til aldurs-
ákvörðunar á bergi og eru megin-
forsenda segultímatals.
16