Náttúrufræðingurinn - 1993, Side 39
UMRÆÐA
Dreifing rjúpna á veturna og vorin
Arnþór Garðarsson (1971) hefur lýst
ferðalögum og búsvæðavali rjúpunnar
á veturna allítarlega og þær upplýs-
ingar eru lagðar hér til grundvallar.
Rjúpurnar yfirgefa varpstöðvarnar í
ágúst-september og sækja til fjalla,
sumar verða þó eftir í kjarrlendi og
hraunum. Þessi búsvæðaskipti verða
innansveitar eða í kjölfar langferða
innanlands. Athuganir á kynja- og
aldurshlutföllum í rjúpnaveiðinni hafa
sýnt að rjúpur sækja frá Norðaustur-
horninu á haustin og vetrarstöðvar
þessara fugla eru líklega í hálendis-
brúninni bæði austanlands og vestan.
Það virðast einkum vera kvenfuglar
og ungir karlfuglar sem taka þátt í
þessum langferðum (Arnþór Garðars-
son 1971). Athuganir á kynjahlutföll-
um rjúpna í Þingeyjarsýslum á veiði-
tíma árin 1966, 1983 og 1984 gáfu
69-71% karra (Arnþór Garðarsson
1971, Ólafur K. Nielsen 1986). Ekki er
vitað nákvæmlega hvenær fuglarnir
leggja í þessar langferðir en Arnþór
taldi að það væri á sama tíma og þeir
færu úr sumarhögunum. Samkvæmt
þessu er ljóst að nokkuð stór hluti
stofnsins yfirgefur Norðausturland á
haustin.
Vetrarsnjór hrekur rjúpurnar úr fjöll-
unum í desember og þær safnast í
kjarrlendi eða á staði þar sem snjó
festir ekki. Ég fór aldrei á fjöll á
ferðum mínum og hef því engar upp-
lýsingar um hvað var þar af rjúpu í
desember til apríl en flestir þeir fuglar
sem ég sá yfir veturinn voru í kjarr-
lendi. Þingeysku lyngheiðarnar eru því
nær rjúpnalausar frá hausti og fram á
vor ef undan eru skildir fáeinir fuglar,
líklega helst karrar (Arnþór Garðars-
son 1971) sem dvelja um kyrrt allan
veturinn. Rjúpurnar sækja aftur til
l'jalla síðla vetrar strax og skilyrði
leyfa (Arnþór Garðarsson 1971). í
samræmi við það sá ég hlutfallslega
flestar rjúpur um veturinn í janúar en
síðan fækkaði þeim í febrúar og mars.
Ekki er vitað hvenær farfuglarnir
koma aftur til Norðausturlands. Ljóst
er þó að rjúpur byrja að sækja út á
heiðarnar snemma í apríl. Athuganir í
Hrísey vorið 1967 sýndu að 6-7
karrar voru mættir á athuganasvæðið
fyrstu dagana í apríl og afgangurinn
(um 15 karrar) kom 6. apríl (Arnþór
Garðarsson 1971). Óðalsskipanin var
komin í fastar skorður um 23. apríl
það vor. Engir karrar voru mættir í
Hofstaðaheiði 20. apríl 1984 og 14.
apríl 1985 og almennt settust karrar
ekki upp í heiðunum fyrr en á tíma-
bilinu 22.-28. apríl þessi tvö ár. Rjúpur
sáust þó í þingeysku heiðunum í fyrri
hluta apríl 1984 og 1985, eins og fyrr
er sagt, en þær höfðu ekki dreift sér á
óðul eða gerðu það aðeins tíma-
bundið. Vel þekkt er að vorhret tefja
fyrir óðalsatferli eða valda því að
karrarnir fara af óðulum og hópa sig
(Arnþór Garðarsson 1971, Poole
1987). Karrarnir eru mjög samtaka
þegar þeir setjast upp og þetta virðist
gerast í einu vetfangi, samanber athug-
anir frá Hrísey 1967 og Hofstaðaheiði
1984.
Upphaf óðalsatferlis rjúpu
og varptími fálka
Fullorðnir fálkar á Norðausturlandi
dvelja allan veturinn á óðali sínu
(Ólal'ur K. Nielsen og Tom J. Cade
1990a). Varptíminn byrjar í fyrstu viku
apríl; meðal- og miðgildi fyrir 241 til-
vik 1981-92 var 19. og 18. apríl (3.
rnynd). Sjálfur undirbúningurinn hefst
nokkru áður með því að kvenfuglinn
hættir að veiða og sest að við
hreiðurklettinn og karlfuglinn færir
honunt æti (Platt 1977, Jenkins 1978,
Bente 1981). Athuganir á fæðuleifum
33