Náttúrufræðingurinn - 1993, Side 72
ysta lag aldins (exocarp)
kímblað
(mesocarp)
vísar að fyrstu laufblöðum
fræskurn
kókosmjólk
kókoskjöt
kímplanta
fræskum
innsta lag aldinsins (endocarp),
samvaxið fræskurninni fyrir innan
miðhluti aidins
8. mynd. Aldin og fræ kókoshnetu (t.v.) og langsneið af baun, sem er fræ (t.h). Utan um
fræ kókospálmans er þykkt aldin. Ysta lagið er þunnt, ntiðlagið er þykkur, trefjaríkur og
loftfylltur vefur sem heldur aldininu fljótandi í sjó. Þegar kókoshnetur eru seldar er oftast
búið að fjarlægja þessi tvö lög. Innsta lag aldinsins er samvaxið fræskurninni. Fræhvítan
er bæði fljótandi (kókosmjólk) og á föstu formi (kókoskjöt). Kímplantan sjálf er örsmá.
Búið er að fjarlægja aldinið, baunabelginn, utan af bauninni. Yst er fræskurn. Engin
fræhvíta er í fullþroska baun; forðanæringin hefur öll verið flutt í kímblöðin, sent eru
stór og þykk og taka æstum allt plássið í fræinu. Einnig sést kímrótin og oft einnig vísar
að fyrstu laufblöðunum. Kókoshnetan tekin úr Raven, Evert og Eichorn (1992), baun
teiknuð af ÞEÞ.
Fræ má greina í þrjá hluta: fræskurn,
plöntukím (eða fóstur) og fræhvítu.
Fræskurnin er mynduð beint úr vefjum
móðurplöntunnar, nánar tiltekið úr
vegg eggbúsins. I upphafi fræþroskans
fyllir fræhvíta út í stærstan hluta fræs-
ins. Fiún er þrílitna eins og áður er
getið; tveir þriðju hlutar erfðaefnisins
eru fengnir frá móður og einn þriðji frá
föður. Þriðji hluti fræsins er svo
plöntukímið sjálft sem þegið hefur sitt
erfðaefni að jöfnu frá föður og móður.
Utan um fræið myndast svo aldin,
oftast úr vegg egglegsins en stundum
úr öðrum hlutum blómsins.
Þegar að spírun fræja blómplantna
kemur er hvort tveggja til að fræhvítan
fylli enn stóran eða stærstan hluta
fræsins eða að hún sé alveg uppurin.
Sé hún uppurin er það vegna þess að
forðanæringin hefur verið flutt úr fræ-
hvítunni og í kímblöðin sem þá verða
stór og þykk. Meðal einkímblöðunga
er algengt að fræhvítan sé enn til
staðar í fullþroska fræi. Sem dæmi má
nefna hveitikorn eða kókoshnetu (8.
mynd). Þær kókoshnetur sem seldar
eru í búðum hér eru reyndar ekki bara
fræið heldur fræið að viðbættum innsta
hluta aldinveggjarins. Hins vegar er
búið að fjarlægja tvo ytri vefina, sem
mynda laust og loftríkt trefjakennt ald-
in utan um fræið sem flýtur í sjó. Sé
kókoshneta nú söguð í tvennt að endi-
löngu og þess gætt að fara í gegnum
„augað“ ætti kímplantan að sjást rétt
við augað sem gulleitari og þéttari
vefur, aðeins um 1 cm á lengd. Allt
hitt er fræhvíta sem í kókoshnetum er
reyndar á tvenns konar formi, sem fast
66