Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1993, Side 74

Náttúrufræðingurinn - 1993, Side 74
fenjaskógum, jafnatrén fyrrnefndu, kalamítar (sem voru elftingatré, ná- skyldir núlifandi elftingum en bara miklu stærri), burknar og að lokum tveir hópar sem áreiðanlega báru fræ og eru taldir frumstæðir berfrævingar. í öðrum hópnum voru fræburknarnir. Elstu fræburknar sem fundist hafa eru frá seinni hluta devontímabils. Burkna- nafngiftin er komin til af því að blöð þeirra voru stór og margskipt og líktust blöðum burkna, en þar sem þeir mynd- uðu fræ ætti fremur að líta á þá sem frumstæða berfrævinga. í hinum hópn- um voru fornbarrviðir (Cordaites) en til þeirra töldust á þessum tíma bæði hávaxin tré og lágvaxnir runnar. Báðir þessir hópar eru löngu útdauðir. Barr- tré komu fram nokkru seinna, líklega í lok kolatfmabils fyrir um 290 milljón árum og köngulpálmar fylgdu á eftir (Raven o.fl. 1992). Þessi fornu fræ voru að mörgu leyti frábrugðin þeim fræjum sem til eru í dag. Þau sýndu miklu meiri breytileika í innri gerð en núlifandi fræ, t.d. þegar litið er á umgjörðina utan um eggbúið, munn eggbúsins, blöðin sem gróhirsl- urnar sitja á, fjölda egghirslna sem myndast í hverri stórgróhirslu o.fl. (Taylor 1982). Af þeim má fá góðan samanburð við byggingu fræja núlif- andi plantna en því miður er minna hægt að ráða af þeim um æxlunar- ferlið. Stærð þessara fornu fræja var einnig breytileg. Allra elstu fræin eru lítil, aðeins 1-3 mm á lengd (Wing og Tiffney 1989). Fram að fyrri hluta tertíer, fyrir um 60 milljón árum, eru flestöll fræ sem fundist hafa lítil en eftir það fara að koma fram stærri fræ með meiri fræhvítu. Sumir fræburknar mynduðu mjög stór fræ, þau stærstu voru yfir 3000 sm3 (Tiffney 1986). Nýlegar rannsóknir benda til þess að þessum fræjum hafi e.t.v. verið dreift af dýrum, sennilega stórum skriðdýrum (Tiffney 1986). Tiffney (1986) hefur leitt líkur að því að dvali hafi ekki verið til staðar í elstu fræjunum. Stærstu fræ sem fundist hafa eru nokkru stærri en stærstu núlifandi fræ. Elstu blómplöntufræ sem fundist hafa eru flest 5-10 mm löng en seinna komu fram bæði stærri og minni fræ (Takhtajan 1991). Kímplantan var mjög lítil í öllum elstu fræjunum. Hið sama, fræhvíturík fræ með smáa kím- plöntu, einkennir einnig þær núlifandi ættir blónrplantna sem taldar eru frum- stæðastar (Cronquist 1988). Þróun frœvunar Til þess að frjóvgun geti orðið þarf frjókorn að berast á fræni samstæðrar plöntu. Þetta er nefnt frævun og hún verður eftir einni af þremur leiðum: með vindi, með dýrum eða með vatni. Stærð og magn frjókorna veitir vís- bendingu um frævunarmátann. Sú vís- bending er þó ekki alltaf áreiðanleg. Vindfrævaðar tegundir framleiða miklu fleiri en jafnframt smærri frjókorn en dýrafrævaðar. Sé stærð frjókorna elstu fræplantnanna athuguð kemur í ljós að hún er mjög breytileg. Frá kolatímabili hafa verið greindir a.m.k. fimm flokkar frjókorna, sem eru allt frá 40 pm upp í 500 pm að stærð. Mjög líklegt er að minnstu frjókornin hafi dreifst með vindi. Stærstu kornin áttu fræburkn- arnir og þau eru það stór að ekki er ólíklegt að skordýr hafi séð um dreif- ingu þeirra (Taylor 1982, Crepct 1983). Ekki er vitað hvaða skordýr þetta gætu hafa verið en til greina koma kakkalakkar, dægurflugur, engi- sprettur, drekaflugur og nokkrir hópar skordýra sem nú eru útdauðir (sjá Taylor 1982). Elstu barrtrén, fornbarr- viðirnir, voru áreiðanlega vindfrævuð (Crepet 1983) eins og núlifandi barrtré. Hjá flestöllum núlifandi fræplöntum 68
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.