Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 82

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 82
bók í jarðvegsfræði er um 465 blað- síður, vegur um 800 g og ef flatarmál allra blaðsíðnanna er reiknað saman er niðurstaðan um 17 m2, eða um 0,02 m2 á hvert gramm. Blöð leirsins eru svo örþunn að yfirborðið verður mun meira, eða 200-800 m2 /g. Aðstæður í jarðveginum ráða því hvaða leirsteind myndast hverju sinni. Við hitabeltisaðstæður skolast flest efni burt úr jarðveginum, önnur en járn og ál, ef nógu langur tími líður. Við þær aðstæður myndast járnríkar og álríkar steindir á borð við goethít og hematít (járnsteindir) og gibbsít (ál- steind). Báxítið sem notað er við framleiðslu áls í álverinu í Straumsvík er einmitt gamall álríkur leirjarðvegur. Járnríkur jarðvegur hitabeltisins þolir afskaplega illa að þorna, því að þá getur hann límst saman og myndað grjótharða skán við yfirborðið (later- ít). Þar sem kalsíum er í jarðveginum myndast gjarnan smektít, sem ásamt kaolíni er líklega algengasta leirsteind- in. Af öðrum algengum leirsteindum má nefna illít, vermikúlít og klórít. Mörg setlög eru rfk af leirsteindum og í jarðvegi sem myndast í slíku seti erfast leirsteindirnar. Því eru ekki allar leirsteindir myndaðar í þeim jarðvegi sem þær finnast í, heldur voru þær til staðar þegar við upphaf jarðvegs- myndunar. Þannig eru setlög sem mynda flestar ársléttur jarðar leirríkar að upplagi. Þessar leirsteindir leysast þó upp með tímanum og aðrar myndast í staðinn ef upprunalegi leirinn er ekki í góðu jafnvægi við umhverfis- aðstæður í jarðveginum. Nánari umfjöllun um uppbyggingu blaðlaga leirsteinda og myndun þeirra má m.a. finna í bókinni „Minerals in soil evironments“, sem er ritstýrt af Dixon og Weed (1989), en sú bók er mjög ítarleg greinargerð um leir í jarðvegi. I bókinni er aðgengilegur inngangskafli sem lýsir helstu gerðum leirs í jarðvegi (Schulze 1989). Af öðrum góðum yfirlitsgreinum má nefna ritgerð eftir Allen og Fanning (1983). Bygging leirs í eldfjallajarðvegi Allófan er algengasta leirsteindin í eldfjallajarðvegi, eins og fyrr sagði. Bygging allófans er með nokkuð öðr- um hætti en blaðlaga leirsteinda. I stað þess að raðast saman í tvívíðar flögur (2. mynd) myndar allófan eins konar kúlur sem hver um sig er agnar- smá, eða um 5 nm (nanómetrar, einn milljónasti úr millímetra) í þvermál. Á 3. mynd sést allófan í íslenskum jarð- vegi. Myndin er tekin með rafeinda- smásjá í Japan, fyrir tilstuðlan jarð- vegsfræðingsins K. Wada. Á henni sést kúlulaga bygging allól'ans mjög vel. K. Wada (1989) ritaði þá lýsingu á byggingu allófans sent helst er vitnað til. Allófan er gert af kísli (Si), áli (Al) og vatni (H,0), sem mynda hringlaga grind þannig að úr verða kúlur sem eru holar að innan (Parfitt og Childs 1988, Parfitt og Kimble 1989, Wada 1989, Parfitt 1990). Hlutfall kísils og áls er nokkuð breytilegt, þannig að atómhlutfallið Al:Si reikar á milli 1 og 3 en er þó oftast nálægt 2 (Parfitt og Kimble 1989). Vegna þessa breytileika merkir „allófan“ í raun hóp eða flokk steinda með breytilega efnasamsetn- ingu. Þessi samsetning er háð því umhverfi sem allófan myndast í, m.a. sýrustigi og járnmagni (Parfitt og Kimble 1989). Mælingar á yfirborði leirsins sýna að allófan hefur gríðar- lega mikið yfirborð vegna smæðar sinnar og Iögunar, eða 300-1000 m2/g eftir því hvernig yfirborðið er mælt (Wada 1989). Allófan með atómhlutfallið AI:Si nálægt 2 er náskylt annarri leirsteind 76
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.