Fréttablaðið - 29.08.2009, Side 35
matur
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]
ágúst 2009
Tilraunaeldhús
Yfirkokkar Fiskfélagsins deila
lundauppskrift staðarins með
lesendum.
SÍÐA 2
Í opnu blaðsins eru uppskriftir frá tveimur meisturum í mat-argerð, Nönnu Rögnvaldar-
dóttur og Evu Guðmundsdótt-
ur. Þetta eru girnilegir réttir
sem allir eiga það sameig-
inlegt að vera úr fersku,
íslensku græn-
meti sem gnægð
er af nú um
stundir.
Nönnu
Rögnvaldar-
dóttur þarf
ekki að kynna
fyrir landsmönn-
um. Hún setur
s a m a n fy r i r
okkur fullkomna máltíð úr ein-
földu hráefni sem margir eiga
við höndina, hvort sem þar er
um eigin uppskeru að ræða eða
aðkeypta. Á hennar diski eru
kryddaðir klattar með fyllingu,
byggpílaf með grænmeti og grænt
og ferskt salat.
Eva Guðmundsdóttir er ein
af kokkum veitingastofunnar
Krúsku við Suðurlandsbraut. Úr
eldhúsinu þar fá lesendur þessa
blaðs nokkrar góðar hugmyndir
að frískandi meðlæti sem hent-
ar með öllum mat. „Hjá okkur er
hausttíminn eins og vorið. Allt
lifnar við þegar bændur koma
færandi hendi með sitt fallega og
litríka grænmeti úr nærliggjandi
sveitum,“ segir hún.
Þó að við Íslendingar fögnum
því vissulega að geta fengið fjöl-
breyttar tegundir af grænmeti að
utan yfir vetrartímann er óneit-
anlega mikill munur á þeim og
hinum kjarngóðu íslensku afurð-
um sem vaxa svo að segja við
bæjardyrnar.
Grænmetið er ómissandi
Eva Guðmundsdóttir er menntuð
sem matartæknir og hefur unnið
á leikskóla Reykjavíkurborgar.
Hún kom til starfa í Krúsku við
opnun hennar á síðasta ári.
„Hvort sem fólk aðhyllist
eintómt grænmetisfæði eða ekki
þá geta allir verið sammála um
að grænmeti er ómissandi sem
meðlæti með öllum mat,“ segir
Eva. Hún kveðst nýbúin að upp-
götva rauðrófur og henni líkar
þær vel. „Rauðrófur eru vítam-
ín- og trefjaríkar og auk þess
skemmtilegar í matargerð. Þær
eru fínar hráar og marineraðar,
mjög góðar soðnar og enn betri
bakaðar,“ segir hún og gefur upp-
skrift að rauðrófurétti.
Kartöflur telur hún bestar beint
úr garðinum, soðnar og borðaðar
með smjöri en sendir okkur þó
Til eru þeir sem telja
grænmeti einungis
kanínufóður. Aðrir
hafa vanist því að
borða það bara í formi
kartaflna og rófna. En æ
fleiri átta sig á gildi
grænmetis í dag-
legu fæði og þá í
fjölbreyttu formi.
FRAMHALD Á SÍÐU 6
Litríkur kostur og ljúffengur
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/N
AT
4
40
74
1
0/
08
Haustborð í rauðu
Ólöf Jakobína Ernudóttir innanhúss-
arkitekt leggur á haustborð og skreyt-
ir með rauðum ylliberjum. SÍÐA 10