Andvari - 01.01.1977, Blaðsíða 10
8
GUÐMUNDUR DANÍELSSON
ANDVARI
III
Nokkrir fróðleiksmolar
um feður og frændgarð Egils Gr. Thorarensens.
Ég geri ráS fyrir, aÖ þorra fólks þyki ættartölur sem þessar heldur
þurr fróÖleikur: langir dálkar af mannanöfnum, fæðingardögum, dánar-
dægrum og staðarnöfnum. En mögulegt er að blása lífsanda í þessar dauðu
skýrslur með því að skyggnast dýpra í þær og beina kastljósi á einn og
annan einstakling ættartrésins. Einmitt þetta er það sem dr. Helgi Pjeturss
gerir í greininni „Mikilsverð mynd - Ásamt nokkurri ættarsögu“ í bókinni
,,Þónýall“, Reykjavík 1947, bls. 153 o. áfr.
Tilefni greinarinnar er, að Egill Gr. Thorarensen kaupfélagsstjóri hef-
ur sent dr. Helga Pjeturss mynd af föðurafa sínum Skúla lækni Thorar-
ensen á Móeiðarhvoli. 1 þessari grein segir dr. Helgi meðal annars:
,,Það er mikið að sjá, þegar litið er á þessa mynd af Skúla lækni á
Móeiðarhvoli, og sést þó vitanlega ekki, að maðurinn var þrjár álnir á
hæð og mjög þrekinn og vel vaxinn. Engum getur blandazt hugur um,
að þarna er mynd af stórættuðum manni og sönnum höfðingja. Svipurinn
er mikilúðlegur og góðmannlegur. Hakan sterkleg mjög, en munnurinn
fríður. Ef til vill eru þó augun eftirtektarverðust; þau eru svo greindar-
leg og lýsa svo frábærri sál. Myndin ber það ekki einungis með sér, að
hún er af mikilmenni, heldur einnig, að þessi svipmikli maður er íslenzk-
ur. Og ef íslenzkum listamönnum er nokkur hugur á að gera góðar mynd-
ir við Sögurnar, þá ættu þeir að virða vel fyrir sér þessa mynd af íslenzku
mikilmenni. Skúli var maður vel ættaður, sonur Vigfúsar sýslumanns á
Hlíðarenda, Þórarinssonar á Grund og Sigríðar Stefánsdóttur, systur Ölafs
stiftamtsmanns. En móðir Skúla var Steinunn dóttir þess ágæta manns
Bjarna Pálssonar náttúrufræðings og landlæknis og Rannveigar Skúla-
dóttur fógeta.
Skúli læknir Thorarensen á Móeiðarhvoli var fæddur 1805 og var því
19 árum yngri en Bjarni skáld og amtmaður bróðir hans, sem fæddur var
1786, eða um það leyti sem árferði á Islandi var í alversta lagi
(Skaftáreldar, Móðuharðindi). Steinunn móðir þeirra var fædd 1763, en
Vigfús maður hennar var nokkrum árum eldri. Mér virðist eftirtektarvert
fyrir þá sem vilja hugleiða, hvað úr íslenzku þjóðinni mundi geta orðið