Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1977, Page 91

Andvari - 01.01.1977, Page 91
ANDVARI HVAÐ HEITI ÉG NÚ? 89 mik ná at þegja fyrir þér.’1 Samsvarandi texti í Morkinskinnu er: ‘Ver þv sva catr sem þer syniz. lat mic raþa mÍNni gldþi.’2 Þeim sem skrifaði foreldri Y-handrita Heimskringlu (Jöfraskinnu, Eirspennils, Huldu-Hrokkinskinnu) hef- ur þó ekki líkað við orðið margr í þessari setningu og hefur sett málugr í stað þess, og í Fríssbók stendur ‘margmalugr’.3 Líklegt er að Snorri hafi hér notað orðið margr í merkingunni kátur, glaður, reifur, en orðið þegja síðar í setning- unni hefur kallað á þær breytingar sem ritarar hafa síðar gert á þessum texta. Mér virðist þessi texti því ekki sanna að hægt hafi verið að nota orðið margr eitt sér um að vera margmáll, eða að teygja lopann. Ef skáldið hefur ætlazt til að orðin jirðum gjörist eg margur væru heil málsgrein (fyrir utan viðurlag með eg), eins og Ólafur gerir ráð fyrir, væri hann þá ekki eftir orðanna hljóðan að bregða sjálfum sér um ergi? Ég fæ ekki betur séð en að lýsingarorðið margur hljóti að vera einkunn með nafnorðinu liðr í þessu vísuorði. Ég lít svo á, að í III 2.1 -2 Fer eg rétt sem fiskr í sjá, / fugl með vængi skerða sé skáldið ekki að reyna að segja neitt annað en að hann sé kominn að niðurlotum fyrir konuást. Ég tel að vísuorðin séu hliðstæð og að milli þeirra sé samtengingin eða, eða og (sem raunar stendur í öðru handritinu, AM 146a 8vo), undanskilin: Ég fer rétt sem fiskur í sjá, (eða/og) fugl með skerða vængi. Skáldið líkir sér við fisk sem skríður, sbr. grein Ólafs, bls. 23, eða flugvana fugl, sbr. þessa klausu í hómilíubókinni norsku: Þat er atkvæði norrœnna manna, at ervitt er litlum fugli með lamðum vængjum at hefja hátt sína flaug.4 Ólafur M. Ólafsson telur að orðin fugl með vængi skerða séu fela, viður- lag við fornafnið ég í fyrsta vísuorði, og að fugl sá sem þarna er getið se getnaðarlimur karla = lostaliður = liðr, sem er ormsheiti. Einnig les Ólafur ormsheiti úr VI 5.3-4 á þessa leið: bótin sára = fé, bjarnar nátt = ár, býsna angrið stinna = nauð, þ. e. fán = fánn, sjá bls. 22. Ormsheitin liðr og fánn þekki ég ekki úr rímum, en að sjálfsögðu má vel vera að rímnaskáld um 1500 hafi þekkt þau; þau eru bæði í þulum Snorra-Eddu. I túlkun sinni á 1. Heimskringh III, ísl. fornr. XXVIII, bls. 259. (Finnbogi Guðmundsson hefur bent mér á þetta orðafar í Heimskringlu.) 2. Morkinskinna nefnd útgáfa, bls. 382.26-27. 3. Heimskringla III, áður nefnd útgáfa Finns Jónssonar, bls. 291, sjá mismunargrein við línu 12. .Eirspennill - Am 47 fol . Udg. . .. ved Finnur Jónsson, Kristiania 1916, bls. 147.20. Eornmanna sögur VII, bls. 119.8. Codex Frisianus, [C. R. Unger], Ohristiania 1871, bls. 293.3. - Um skyldleika texta í handritum Heimskringlu sjá: Jonna Louis-Jensen, Konge- sagastudier, Kompilationen Hulda-Hrokkinskinna, Bibliotheca Arnamagnæana XXXII. Kóbenhavn 1977, bls. 34-59. 4. Jón Helgason, Vers i homiliebógerne, Bibliotheca Arnamagnæana XX, bls. 359.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.