Andvari - 01.01.1977, Síða 136
134
JÓHANN GUNNAR ÓLAFSSON
ANDVARl
fyrir Sigga litla. Ég fékk bréf frá honum
í dag, og skrifaði hann mér, hvað hann
væri búinn að lesa, og þykir mér honum
hafi gengið allvel, ef kunnáttan er eftir
yfirferðinni.
Nýársdag 1894.
Séra Valdimar til Björns.
Siggi er nú í leik og glaumi og þykir
mér ekki taka að ónáða hann.
23.1. 1894.
Séra Valdimar til Björns.
Um lærdóm Sigga hef ég lítið að
skrifa. Honum gengur þetta bærilega,
en þó ekki eins greitt og ég vildi.
27.2. 1894.
Björn til séra Valdimars.
Hvað heldur þú um, hvað snemma
Siggi þurfi að koma til að búa sig undir
í stærðfræðinni? Heldurðu að það dugi
að láta hann koma seinna en um mán-
aðamótin mars og apríl? þú skrifar mér
álit þitt um þetta við tækifæri.
7.3. 1894.
Séra Valdimar til Björns.
Þú minnist á það, hvenær Siggi eigi að
koma til Reykjavíkur. Ég hcld, að það
sé öldungis óþarft að hann fari nú þegar
um næstu mánaðamót, vegna mathematík-
urinnar ... Siggi er reyndar námsmaður
minni (cn Jóhann sál.), en þó vantar ekki
gáfurnar yfirhöfuð amk. Ég veit reyndar
varla, hvort hann er reikningshöfuð ...
Hann er held ég húinn að yfir fara allt,
sem hann á að hafa til prófs. Málin öll
vona ég að hann geti útlagt rétt, við-
stöðulítið, hvernig sem honum gengur
að svara út úr ... Mér hefur dottið í hug
að senda hann með pósti (eins og hann
var fyrst sendur til landsins).
Ég býst við, að hann fari héðan alfar-
inn til veru að staðaldri. Ég hef grun
um, að hann langi til að vera á skútu í
sumar, þó ekki vilji hann koma upp með
það ... Mér sýnist ekkert á móti því að
lofa honum að vera á skútu í tvo mánuði
(júlí og ágúst) ... og farið lystitúr hingað
og að Hvoli. Kannski slík skútuvist gæti
líka curerað hann til fulls fyrir þeirri
löngun hjá honum til að verða sjómað-
ur ...
Sigga langar mikið til að fara að Hvoli
um páskana.
Á páskadaginn 1894 (25.3).
Björn til séra Valdimars.
— afsaka mig við Sigga, sem ekki fær
nema kveðju í þetta sinn. Ég vona að
sjá hann í lok næsta mánaðar og fellst
fullkomlega á ráðstöfun þína þar að lút-
andi, að hann komi hingað með pósti.
Bækur hans, sem hann þarf til prófs,
væri réttast að setja á póstinn sem kross-
bandssendingar, og verður það ekki mjög
dýrt, en auðvitað þarf að pakka í fleiri
pakka, því enginn má vera yfir fimrn
pund með umbúðum. Ég verð að biðja
þig að gera svo vel að leggja út porto
undir þetta og gera mér reikning fyrir
síðar.
15.4. 1894.
Séra Valdimar til Björns.
Oll þessi veikindi hafa gjört fjarska
mikla óreglu, ekki sízt á lærdóm Sigga.
... Ég hef nú þegar Siggi fer ekki nema
gott um hann að segja, að því fráteknu
að mér hefur fundizt hann frábitnari
námi eftir því, sem á hefur liðið, en skól-
inn lagar það kannski. hlann er að rnínu
viti alveg óspilltur og siðferðisgóður. Og
ekki veit ég til að hann hafi vanizt hér
á neitt misjafnt, nema ef skyldi telja það,
að hann er fíkinn orðinn í að reykja. Það
hcfur ihann lært af mér. Ég reyndi fyrst
að halda honurn frá því, en það tókst ckki,
s\'o ég var seinast farinn að gefa honum