Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1986, Page 170

Andvari - 01.01.1986, Page 170
168 GILS GUÐMUNDSSÖN ANDVARI Ekki reyni ég að rýna eftir því, hvenær sá sundurgerðarmaður var uppi með íslenzkri þjóð, sem gerði móðurmáli sínu það til óþurftar að þykjast þýða patríót á íslenzku og kalla föðurlandsvin, sem virðist ekkert hafa fram yfir orðið patríót nema tilgerðina. Orðið patríót fer vel í málinu og beygist eins og idíót. Þannig má rekja þessa fáfengilegu tilgerðarrollur aftur og fram um gervalla ævi tungunnar, og má vera átakanlegt fyrir þá, sem smekkinn hafa fyrir tilgerð- arleysinu, enda skal hér brotið í blað. 6 Sá Vilmundur sem ég kynntist við borð þeirra Árna Pálssonar í Ingólfs- kaffi kemur ef til vill einna skýrast fram í bréfunum í þessu nýja ritsafni. Ætla ég að blaða í þeim nokkru nánar og freista þess að miðla lesendum Andvara einhverju af andblæ þeirra. Lítum fyrst í langt bréf til frænda Vilmundar og vinar, Guðbrands Magnússonar, síðar forstjóra. Pað er skrifað í desember 1914. Það er í átján köflum og kemur frásagnagáfa Vilmundar hér skýrt fram. Einn kaflinn er á þessa leið: Lítil saga um mannlega náttúru. Stúlka er hér í bænum og býr með móður sinni. Hún hló ýmist eða grét eins og aðrar stúlkur. Hún gekk út og inn um hús- ið eins og aðrar stúlkur. Hún fór á Bíó og Gúttó eins og aðrar stúlkur. Stúlkunni þótti vænt um móður sína. Það er ekki í frásögu færandi. Móðurinni þótti líka vænt um dóttur sína. Það er heldur ekki í frásögur færandi. Móðirin hélt yfír- leitt, að ekki væru á hverju strái penari og skikkanlegri stúlkur en hún dótdr hennar. Hún hafði enga ástæðu til að halda annað. Hér á dögunum var stúlkan alveg eins og hún átti að sér að vera. Ekki gat hún fundið annað. Og ef móðir hennar hefði verið spurð að því, hvort nokkuð væri að henni dóttur hennar, þá hefði gamla konan bara hlegið og ekki skilið neitt í spurningunni. En það var enginn, sem spurði. Það gat heldur enginn spurt svona heimskulega. Það sá eng- inn neina ástæðu til þess. En hvað um það. í fyrradag bar gamla konan dóttur sinni morgunkaffíð, eins og venjulegt var. Þá rís dóttirin upp við olboga, óvenju- föl og óvenju vel vakandi um þetta leyti dags, og segir: „Elsku góða mamma mín, þú mátt ekki verða vond við mig, ég er búin að eiga barn.“ — Barnunginn var spriklandi undir sænginni og óskilið á milli. Nú er ég mest að hugsa um það, hvort nokkuð hafi farið niður úr kaffibollanum. Þórbergur Þórðarson kemur lítið eitt við sögu í þessu langa bréfi. Þeir Vilmundur höfðu kynnst þrem árum áður: Ég fæ annars góða gesti í kvöld. Nú þegar Billi er farinn, kemur Þórbergur. Hann kemur sjaldan. Nú les hann kvæði eftir sig. Það er gott eins og öll kvæðin hans, síðan hann hætti að yrkja í alvöru. Hann situr hérna hinum megin við borðið. Hann beygir sig, en ég sé ekki, hvað hann er að bogra. Hann réttir úr
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.