Andvari - 01.01.1957, Page 13
andvari
Pálmi Hannesson rektor
9
Þegar Pálmi var á þriðja ári, missti hann föður sinn og
naut því eltki uppeldisáhrifa frá honurn, en hann var maður
vel greindur og hafði aflað sér allmikillar þekkingar, enda bók-
hneigður, þótt ekki nyti hann skólagöngu. Mjög var hann hóf-
samur og vel látinn. Eftir að móðir Pálma varð ekkja, hélt hún
áfram búskap á Skíðastöðum, til þess að þurfa ekki að skilja
börnin við sig. Var hún umhyggjusöm móðir, og kynntust börnin
hvorki skorti né illri aðbúð á annan hátt. Vinnuhjú hjá henni
var ungt fólk og heimilisbragur ágætur. Ingibjörg giftist öðru
sinni þáverandi ráðsmanni sínum, Gísla Björnssyni, sem síÖar
varð fasteignasali í Reykjavík. Bjuggu þau rausnarbúi, enda var
Gísli dugnaðarmaður, hygginn og framkvæmdasamur og mjög
a undan öðrum bændum sveitarinnar bæði með ræktunarfram-
kvæmdir og byggingar á bújörð sinni. Byggði hann upp öll hús
jarðarinnar, þar á meðal íbúðarhús úr steinsteypu, og var það
annað fyrsta íbúðarhús úr steini, er byggt var í sveitum Skaga-
fjarðar. Gísli var stjúpbömum sínum góður og lét sér annt um
þroska þeirra. Nutu þau tilsagnar hjá farkennurum á vetmm,
eins og þá var títt. Allir heimilishættir á Skíðastöðum voru
rneð myndarbrag. Sáu börnin fyrir sér athafnasemi, þar sem
tnninn var vel notaður, og vöndust þau við öll algeng sveitastörf.
Pálmi var tápmikill og námfús drengur, glaðlyndur, en
skapbráður í bernsku. Kom það einkum fram, er eldri systkini
bans stríddu honum. Vildi hann þá ekki láta hlut sinn, en var
þó jafnan mjög sáttfús. Hafði hann gaman af lestri bóka, var
nunnugur og athugull. Veitti hann ýmsu í umhverfinu, svo sem
landslagi, grösum og grjóti, meiri athygli en flestir aðrir á hans
reki. Nokkuð var hann spurull um marga hluti, ef hann fýsti
að vita skil á þeim.
Flest af því, sem hér er ritað um æskuheimili Pálma, er eftir
§óðum heimildum ættingja hans og sveitunga. Sjálfur hafði ég
^ngin kj'nni af því, en hitt veit ég, að Pálmi bar því gott vitni
1 verki. Hann var svo lesinn og minnugur á þjóðsögur, íslendinga-
sogur og ljóðmæli, að hann hlýtur að hafa haft talsverðan bóka-