Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1957, Page 28

Andvari - 01.01.1957, Page 28
24 J. Eyþórsson ANDVAHI Ilún liefur leitt mennina til allra framíara, og hún mun leiSa þá til miklu stærri og veglegri sigra en oss dreymir um. Þess vegna boða ég ykkur Jeitina aS sannleikanum. Hvernig starf mitt reynist og vonir mínar rætast, fær enginn vitaS 'fyrir. Menn mega ræSa um þaS máil og rita, eins og þeim líkar bezt. En orS hafa þar engan sannanamátt, heldur verkin ein. SíSar, þegar lífi mínu er JokiS, mun framtíSin kveSa upp sinn dóm yfir mér, því aS hæsti sjónaihóllinn yfir mannlegt lí'f — er gráfar- bakkinn.1) Svo kveS ég ykkur til starfs og drengilegrar athafnar. Gangið fram og hlúiS þið að 'hverju lífgrasi, sem grær við götu ykkar. — En umfram a 111: LeitiS sannlei'kans." Hinn ungi rektor náði þegar góðum tökum á skólastjórn. Hann kom brátt á góðu samstarli við alla kennara skólans. Nem- endur lærðu fljótt að rneta drengilega framkomu hans og hressi- legt viðmót, jafnvel þótt sumir mættu í öndverðu með nokkra tortryggni í kollinum. Ýmis nýbreytni kom til sögunnar, sem ungt fólk kann oftast að meta, livað sem hver segir. — Skólinn fékk til umráða frá ríkinu bíl, gamlan að vísu, háværan og hastan. Hét sá „Gamli gráni“. Létti hann mjög undir sundferðum nem- anda inn í Laugar og skíðalerðum. Bókasafnið Iþaka var lagfært og lestrarsalur búinn þar neinöndum. Gagngerð viðgerð fór einnig fram á kennslustofum skólans. Skrópvottorð voru afnumin, en i þess stað leitaðist rektor við að kynna sér ástæður fyrir fjarvistum nemanda. Mætti hann að jafnaði fyrstur manna að morgninum, athugaði ljarvistir og hafði síðan samband við heimili nemanda, 1) Við andlatsfregn Pálnta skrifaði aðalritstjóri Morgunblaðsins á þessa Lið m. a.: „Stjórnaði hann skólanum með mikilli reglusemi, áhuga og velvild til allra hinna mörgu nemenda sinna. Hann var félagslyndur maður og kom ser alls staðar vel í samstarfi við aðra. . . .“

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.