Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1957, Page 39

Andvari - 01.01.1957, Page 39
andvari Hérað milli sanda og eyðing þess. Eftir Sigurð Þórarinsson. Svo segir í Landnámabók, að þegar Ingólfur Arnarson hélt til íslands öðm sinni og hugðist nema þar land, skaut hann fyrir t>orð öndvegissúlum sinum til heilla, er hann sá landið, og mælti svo tyrir, að hann skyldi þar byggja, er súlurnar kæmu á land. Sjállur tók hann þar land, sem nú heitir Ingólfshöfði. Ekki er þess beinlínis getið, hvar hann hafi haft sína fyrstu vetrarsetu, en gera má ráð fyrir, að það hafi verið einhvers staðar þar nærri. Svo er og sagt, að þá er Ingólfur að endingu tók sér bólfestu rar sem þrælar hans, Karli og Vífill, fundu öndvegissúlumar á land reknar, hafi Karli mælt: „Til ills fóru vér um góð hémð er vér skulum byggja útnes þetta“. Lengi býr að fyrstu sýn, og hafi Karli viðhaft þ essi ummæli er ekki óliklegt, að hann hafi 'att í huga gróðurlönd þau, er fyrst urðu á vegi hans á Islandi °g þar sem hann upplifði sitt fyrst íslandsvor, bjarkarhlíðar og 'íðlenda grasvelli í skjóli jökuljöfurs þess, er hæst ber á íslandi. hki mun þá margur bletturinn bafa verið búsældarlegri á ís- Jandi öllu og líklegt að ásarnir kringum Reykjavíkina hafi verið nnnna freistandi til búsetu. Ekki gat Karla þræl órað fyrir því, a< á þessum sömu ásum myndi síðar búa nær helmingur lands- otitsins. Og ekki óraði hann heldur fyrir því, hverjum örlögum ngollur bægði frá niðjum sínum með því að lúta vilja guðanna eg yíirgefa hinar búsældarleg u brekkur og velli við rætur hins náva jökuls. Virðum snöggvast fyrir okkur byggðina austur þar. Fram á

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.