Andvari - 01.01.1957, Page 41
andvaiu
Hérað milli sanda og eyðing þess
37
Loftslag er gott í Öræfum á íslenzkan mælikvarða, einkum
vestan jökuls, og hygg ég, að engin býli á landinu njóti meiri
veðurblíðu en Svínafell og Skaftafell, enda ber gróðurinn því
vitni. Meðan enn var ferðazt á hestum var það ævintýri að
koma vestan yfir Skeiðarársand til Öræfa. Eftir daglanga reið
yfir gráar sandauðnir og stundarlangt svaml yfir kaldar kvíslar
Skeiðarár barst manni að viturn bjarkarilmurinn úr skógarbrekk-
unum við Skaftafell eða Svínafell. Hestarnir greikkuðu sporið
°g innan skamms var maður sunginn í svefn af niði fossandi
bæjarlækja í annarri bvorri þessara unaðslegu vinja, sem ekki
eiga sinn líka á landi bér.
Ekki þarf lengi að skyggnast um í fornum beimildum til
:'b komast að raun um, að margt hefur breytzt á þessum slóðum
síðan byggð hófst þar. Landnáma segir Þórð Illuga hafa brotið
sbip sitt á Breiðársandi og tekið sér bólfestu undir Felli, þ. e.
a þeim bæ, er síðar er nefndur Fjall, við rætur Breiðamerkur-
íjalls. Litlu austar var bær sá, Breiðá, þar sem Njála segir Kára
hafa búið. Enda þótt litið sé á Njálu fyrst og fremst sem mikið
skáldrit, er bún skáldrit af því tagi, að meistari hennar myndi
aldrei hafa látið Kára búa á Breiðá, nema þar bafi verið myndar-
jörð í bans tíð eða hann bafi vitað til þess, að þar bafi áður
fyrr verið gott undir bú. Nú eru bæði þessi býli, Fjall og Breiðá,
nýlega komin undan jökli, vegna jökulbráðnunar síðustu ára-
tugaj eftir að bafa verið ísi hulin meir en tvær aldir.
A þjóðveldistímanum var Svínafell stórbýli, einkurn á Sturl-
Uugaöld. Öðru vísi hefur þá verið þar umhorfs en nú, er Svína-
fellsjökull befur ekið háum jökulgörðum í fárra bundraða metra
fjarlægð frá túninu og jökulár hafa breitt út aura sína næstum
leim undir túnfótinn.
Það er því auðsætt, að jöklar hafa gengið fram og sorfið
að þessari byggð síðan menn tóku sér þar bólfestu. Þetta hefur
Pu ekki baft úrslitaþýðingu um örlög byggðarinnar, allra sízt
raman af öldum. Önnur öfl urðu þar afdrifaríkari. En víkjum
ryrst nokkru nánar að hinni fornu byggð.