Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1957, Side 56

Andvari - 01.01.1957, Side 56
52 Þorkell Jóhannesson andvari 1857. Gerði hann samning við bændur í Borgarfirði um kaup á laxi til niðursuðu. Niðursuðu þessa rak liann fyrst í Borgar- nesi en flutti hana síðar upp í árrnót Hvítár og Grímsár, skamrnt fyrir ofan Hvítárvelli. Segir í Héraðssögu Borgarfjarðar, að Ritchie ræki niðursuðu þessa til 1876. Greiddi hann 10 sk. fyrir pundið í laxinum slægðum og hausuðum frá öndverðu, en er laxverðið komst upp í 30 aura, þótti honum það of hátt og hætti niðursuðunni. Hér segir og, að hann hefði niðursuðu á Akranesi, syði þar niður fisk, einkum ýsu, um nokkurt skeið. 1859—1861 leigði Ritchie veiði í Elliðaám og hafði niðursuðu og reykhús i Laugarnesi. Virðist starfsemi þessi öll hafa gengið nógu vel, þvi 1861 skýrir Þjóðólfur frá því, að annar brezkur maður, Hogarth að nafni, stundi veiðar í Olfusá og Þjórsá. 1862 er Ritchie hættur við Elliðaárnar og sýður niður fisk í Laugarnesi, en í ágúst um sumarið brann geymsluhús hans í Laugarnesi og fór hann við það á brott með mönnum sínum og mun ekki hafa stundað veiðar syðra eftir það. Þegar hér var kornið sögu, var ekkert því til fyrirstöðu, að bein viðskipti ætti sér stað milli íslands og Bretlands. Lóru og flutningar þangað og þaðan vaxandi, úr því er verzlunin var frjáls orðin. Árið 1859 gera Englendingar tilraun með að efna til fastrar verzlunar á Seyðisfirði. Voru það kaupmenn frá GlasgoW, Henderson og Anderson, er hér riðu á vaðið. Árið 1863 stofnuðu þeir verzlunina Glasgow í Reykjavík en litlu fyrr eða 1861 höfðu þeir keypt verzlunarstaðinn Grafarós nyrðra. Verzlun þessi hætti 1868 með gjaldþroti. En þótt svona færi fyrir Henderson, ma kalla, að þessi fyrsta tilraun til beinna verzlunarviðskipta milh Englands og íslands yrði affararík. Upp frá þessu færast við- skiptin við England í aukana með ýmsum hætti, sem enn mun sagt verða. Um og upp úr 1860 fara ungir íslendingar, sem framast vildu í kaupskap, að sækja til Englands. Má til þess nefna Þorlák Ó. Johnson, frænda Jóns Sigurðssonar, Pétur Eggerz frá Akur- eyjum, Þórð Guðjohnsen, síðar faktor 0. & W. í Húsavík o. fl-

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.