Andvari - 01.01.1957, Síða 64
60
Þorkell Jóhannesson
ANDVAM
laust hafði sterk áhrif á þessa þróun málanna og átti ef til vill
mestan þáttinn í því að menn hófust handa einmitt á þessu ári,
1869. Síðan 1865 höfðu átökin í frelsisbaráttu landsmanna farið
harðnandi, en umræöurnar um fjárhagsmálið, er nátengt var
sjálfu stjómarbótamálinu, höfðu átt drjúgan þátt í því að vekja
menn til umhugsunar um atvinnu- og fjármál landsmanna, hversu
þeirn yrði hrundið í betra horf. Frá þessari sjónarhæð blasti
verzlunarlagiÖ við í tvöfaldri eymd og niðurlægingu landslýðs-
ins. Hin danska selstöðuverzlun táknaði fyrst og fremst fjár-
hagslega undirokun landsmanna, en hún var líka tákn stjórnar-
farslegs ófrelsis og kúgunar. AðgerÖir, sem til þess miSuðu að
losa um ánauð verzlunarinnar, voru þáttur í sjálfri frelsisbar-
áttunni. En einmitt nú væntu menn þess, að til nokkurra úrslita
myndi draga í þessari baráttu, á hvern veg sem verða myndi.
Mönnum er gjarnt að hugsa sér, að hin góðu árin leiði rnenn til
franrtaks, góðærið skapi þeim holmagn til framkvæmda áhuga-
málum sínum og einurÖ til þess að koma þeinr áleiðis. Vera ma,
að stundum sé þessu svo farið. En eigi á það við árin 1868—
1869 og þau tíðindi, sem þá gerðust. Árið 1868 mátti kalla í
mesta lagi óhagstætt, einkum sunnan lands og vestan. Vetrar-
vertíð var mjög léleg í mörgurn stöðum, en vorið og sumarið
úrkomusöm, svo að varla kom þurr dagur frarn undir lok júlí-
mánaðar. Hér bættist svo við, að mikil mistök urðu í komvöru-
aðdráttum. Var sýnt, þegar er á sumarið leið, að gera yrði sér-
stakar ráðstafanir til þess að afstýra hallæri, enda var í ljós komið,
að maðkur var í miklu af korni því, sem þá var flutt til landsins.
Undir haustið voru liorfurnar svo ískyggilegar meðal alls þorra
rnanna, allt austan frá Mýrdalssandi og vestur að Isafjarðardjúpi,
að stórkaupmannafélagið í Kaupmannahöfn hófst handa um fjar'
söfnun til þess að afstýra hallæri. En fyrir samskotafé þetta, er
virðist liafa komið víða að, sumt alla leið sunnan úr Frakklandi,
voru keyptar á annað þúsund tn. af korni og allmikið magn af
brauöi, er útbýtt var víða um sveitir. Auk þess lánaði ríkis-
stjórnin 7500 rd. til kornkaupa. Þess var að vænta, að verzlunin