Andvari - 01.01.1957, Side 66
62
Þorkell Jóhannesson
ANDVARI
magn af aðalútflutningsvöru sinni, ullinni, til þess að borga jafna
vigt af korni 1868. Til þess að ráða bót á ókjörum þessum liafi
Eyfirðingar keypt skip 1868 og Seltirningar hafið pöntunarsam-
tök sín sumarið 1869. í Fréttum frá íslandi 1870 segir svo: „Þess
var getið í fyrra (1869), að landsmenn hafi á nokkrum stöðum
verið að reyna að gjöra félag og samtök til að setja sig beinlínis
í samband við erlendar verzlanir; veturinn 1869—1870 jólcst
áhugi manna á þessu enn meir og verzlunarfélög mynduðust
víðsvegar um land, er á ýmsan hátt leituðust við að ná tilgangi
sínum og útvega betri kaup en menn áttu kost á að fá við hinar
föstu verzlanir hér á landi. Sigfús Eymundsson ljósmyndari bafði
átt allmikinn þátt í félagi manna þeirra í Reykjavík og þar í
grennd, er 1869 lcngu vörur sínar beinlínis frá útlöndum með
póstskipum; bann stóð í sambandi nokkm við sum af félögum
þessum, og fór hann í fyrra vetur upp um Borgarfjörð og vestur
um Dali og samdi þar við menn; tókst Sigfús á hendur að út-
vega þeim nýja verzlun, en þeir skuldbundu sig aftur'að eiga
viðskipti sín við hann.“
Sigfús Eymundsson var upprunninn í Vopnafirði, f. 1837-
Hann fór utan til bókbandsnáms í Kaupmannahöfn 1857 og
dvaldist fjögur ár í Kaupmannahöfn, en því næst hálft fjórða
ár í Noregi, í Kristjaníu og Björgvin, nam þar m. a. ljósmynda-
gerð. Því næst fór hann aftur til Kaupmannahafnar og dvald-
ist þar við Ijósmyndasmíði hálft annað ár. Hvarf hann svo til
Islands eftir 10 ára útivist og settist að í Reykjavík 1866. Hér
verður ekki nánara rakin ævi Sigfúsar, en af því, sem nú var
sagt, er Ijóst, að hann muni verið hafa af langdvölum sínum
ytra allvel kunnugur bæði í Kaupmannahöfn og í Björgvin, sem
hér skipti mestu máli. Að sjálfsögðu hafði hann rnikil kynm
haft af Jóni Sigurðssyni á Hafnarárum sínum. Er efalaust, að
forráðamenn verzlunarfélags Seltirninga festu auga á Sigfúsi til
framkvæmdastjórnar fyrir félag sitt cigi sízt vegna kynna hans
ytra, en að öðru var Sigfús líklegur til góðra afreka, maðurinn
stórhuga og framkvæmdagjarn, þótt líklega væri hann ekki þeim