Andvari - 01.01.1957, Page 67
andvari
Brot úr verzlunarsögu
63
vanda vaxinn, er hann tókst nú á hendur, enda efalaust á fárra
manna færi að leysa þá þraut, eins og hér var í haginn búið.
I fyrsta kafla þessarar greinar var frá því sagt, að árið 1848
var stofnað verzlunarfélag í Reykjavík. Var Jón Guðmundsson,
síðar ritstjóri Þjóðólfs, einn helzti forgöngumaður þess. Lítið sem
ekkert er nú kunnugt um sögu þessa félags, en vel má vera, að
það hafi eitthvað látið til sín taka um nokkra hríð a. m. k. og
vafalaust hafa ýmsum mönnum í Reykjavík og nágrenni hennar
ekki verið með öllu úr minni liðin samtök þessi, er hér var
komið sögu, sízt þeim sem forgöngumenn höfðu verið, eins og
t. d. Jón Guðmundsson ritstjóri, er telja má meðal helztu braut-
ryðjanda samvinnuverzlunar hér á landi, svo sem enn verður frá
sagt. Jón dvaldist ytra frá því um jól 1868 og kom heim í marz
1869. Mætti vera að hann hafi átt beinan þátt í því að greiða
fyrir viðskiptum félags Seltirninga ytra. Hitt má víst telja, að
hinn gamli forvígismaður ,,Verzlunarfélagsins í Reykjavíkurkaup-
stað“ hefir átt meira en lítinn þátt í því síðara hluta árs 1869
og fram um áramótin 1870, að ákveðið var að efla verzlunar-
samtökin syðra og vestra, að nokkru undir forustu verzlunar-
félags Seltirninga, og ráða framkvæmdastjóra til þessa starfa, svo
sem fyrr var sagt. Slíkt gerist ekki án rækilegrar íhugunar og
samráðs margra manna, en tengsli Jóns við félagsskap þennan
síðar benda sterklega til þess, að bann hafi átt mikinn hlut að
því frá upphafi. Haustið 1869, er blað hans Þjóðólfur skýrir
frá framkvæmdum Seltirninga, lætur hann vel yfir, „þegar þetta
Cl' skoðað sem lítilfjörleg byrjun.“ Engum, sem hér áttu hlut
að máli, gat Ijósara verið en Jóni Guðmundssyni, að eins og
hér var högum háttað, gæti Seltirningar einir, og þótt nokkrir
Reykvíkingar fylgdi þeim að málum, engan veginn haft nægi-
lfigt bolmagn til þess að reka sjálfstæða verzlun. Félagsmenn
bafa líka fljótlega látið sér skiljast, að þetta var rétt. Hér var
b'á upphafi um það að ræða að ná samningi við erlent firma,
er tæki að sér að senda hingað vörur með tilteknum kjörum gegn
föstum gjaldvöruloforðum. Seltirningar, a. m. k. útvegsbændurnir
5