Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1957, Side 78

Andvari - 01.01.1957, Side 78
74 Þorkell Jóhannesson andvari mundsson gerðist framkvæmdastjóri félagsins. Svo er talið, að hið fyrra verzlunarfélag í Reykjavík, sem stofnað var 1848, að nokkru leyti að forgöngu Jóns, liafi lamazt þegar í upphafi, vegna þess að Jón fór af landi brott litlu síðar og gat því ekki lagt þ ví lið, er mest reið á. Mætti virðast sem svo, að Jón Guð- mundsson hafi verið minnugur þess, að hann átti verzlunarsam- tökunum skuld ólokna, er hann á gamals aldri og tæpur að heilsu kastar frá sér ritstjórn og umsjá Þjóðólfs og helgar verzlunar- félaginu krafta sína. Idinn 13. des. sigldi Jón til Kaupmanna- hafnar í erindum félagsins. Heim kom hann úr þessari för 22. marz 1874. Hafði hann þá selt blað sitt, Þjóðólf, Matthíasi skáldi Jochumssyni. Skorti félagið ekki vörur og var hús keypt og verzlun hafin. Hinn 6. júlí var fyrri aðalársfundur félagsins haldinn í Reykjavík. Hlutaféð var þá réttir 12 þús. rd. Þótti allvel horfa um hag félagsins og ákvað stjórn þess að greiða hluthöfum 4% í ársvexti. Af því sem nú var sagt, mætti svo virðast sem glæsilega horfði fyrir verzlunarhlutafélaginu, þrátt fyrir allt. Hélt það og vel í horfi árið 1874. En hér urðu skjót veðrabrigði. Hinn 31. maí 1875 andaðist framkvæmdastjórinn, Jón Guðmundsson, eftir nokkra vanheilsu en stutta legu. Þar með var frá fallinn sá maðurinn, er samtökin rnáttu sízt missa. Virðist svo sem félaginu hafi hnignað skjótlega eftir fráfall Jóns. Þátttaka bænda úr austursveitum mun hafa brugðizt og reksturinn dregizt saman, en þó leið félagið ekki til fulls undir lok fyrr en 1883—1884, er Veltan var seld og öllum rekstri hætt. Var Halldór Kr. Frið- riksson lormaður þess alla tíð frá 1875. Kalla má að samtök Reykvíkinga og Seltirninga, er hófust þó svo glæsilega á árunum 1868—1869, fengi litlu til vegar snúið til umbóta á verzluninni. Upp úr samtökum Borgfirðinga og Mýramanna spratt lítið, nema ef telja skyldi að héðan af tókst allmikil lausaverzlun á Brákarpolli og síðar föst verzlun Jóns Jónssonar frá Okrum. Breiðfirðingar og Snæfellingar brugðu 1873 á sarna ráð og Sunnlendingar, er menn þóttust sjá fyrir

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.