Andvari - 01.01.1957, Blaðsíða 89
andvari
Þáttur um skipsströnd í Skaftafellssýslu
85
væri að fara, með tilkynningu urn atburðinn, svokölluð strand-
boð, eftir að mannbjörg var lokið, þótt allt væri í óvissu um af-
drif sjálfs skipsins, en hreppstjóri og aðrir gegnir menn í sveit
hverri voru hér tilbúnir til aðgerða, sem oft fóru yfrið vel úr
hendi, þótt við hina mestu örðugleika væri að stríða. Sími var
þá eigi kominn urn sveitir lands. — En þegar svo var komið,
sem nú var greint um strandboð, og eftir að lögreglustjóri fékk
þá vitneskju, voru allar frekari ráðstafanir fyrst og fremst á hendi
hans. Var þar t. d. um að ræða björgun úr strandinu, hirðing
þess og gæzlu, uppboð á strandgóssi, og síðast en ekki sízt hinir
umsvifamiklu strandmannaflutningar.
Að úthallandi fyrsta embættisvetri mínurn í Skaftafellssýslu
(1918—19) komu til mín sem hraðboðar um strand í Öræfum
(raunar fæðingarsveit minni) þeir kunnu Svínafellsbændur,
vatna- og ferðamenn, Jón Sigurðsson og Páll Jónsson (nú látnir
fyrir mörgum árurn), og var þá ekki valið af verri endanum;
höfðu þeir farið dagfari og náttfari, eftir því sem við varð komið,
nokkurar dagleiðir yfir stórsanda og vötn allt til Víkur í Mýrdal.
bá þótti rétt, eins og á stóð um burtkomu, að beina strand-
manna llutningi til Hornafjarðar, svo að kæmust sem fyrst á
skip í Austfjörðum til útlanda; en ella lá leiðin nær ávallt vestur
á bóginn, til Víkur og þaðan til Reykjavíkur. Allt var þetta að
sjálfsögðu farið á bestbaki fyrrum, með mörgum fylgdarmönn-
um og enn fleiri hestum bæði til reiðar og fyrir trúss, og skiptu
þeir tugum, því að skipshafnir gátu orðið allt að og yfir tuttugu
manns, gersamlega óvant fólk til allra þvílíkra ferðalaga, oft í
dlri færð og veðurhörku og yfir foraðsvötn. En mikið erfiði, um-
stang og örugga aðgæzlu þurfti til þess að útbúa slíkan flutning
°g koma lionum lársællega áfram, bæði að því er snerti meðferð
manna og hesta, enda skorti aldrei aðhlynning á bæjum þeim,
þar sem strandmenn þurftu að hafast við, frá því er þeir komu
af hafi hraktir af sjóvolki og þangað til yfir lauk um ferðalag
þeirra að farkosti heim á leið. Ávallt var að minnsta kosti einn
fararstjóri fyrir þessum miklu og vandasömu flutningum, ábyrgðar-