Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1957, Side 100

Andvari - 01.01.1957, Side 100
---------------------------------------------------- Pálmi Hannesson: LANÐIÐ OKKAR Bók þessi flytur úrval útvarpserinda og ritgerða eftir Pálma Hannesson rektor. Kennir þar margra og góðra grasa, enda var Pálmi einhver hinn snjallasti og vin- sælasti útvarpsmaður. Af efni bókarinnar má nefna: Frá Móðurharðindunum. — Skoðanir erlendra manna á Islandi fyrr og nú. — Askja. — Um jarðelda og ísland. — Islenzk mold. — Landið okkar. — Islandslýsing Jónasar Hallgrímssonar. — Fjallið Skjaldbreiður. — Nokkrir fræðimenn. — Lesið í bolla. — Á skíðum. — „Ef et betra telk“. — Eldgosið á Krakatá. — Eldgosið á Martinique. — Um lífið, eðli þess og uppruna. Jón Eyþórsson kemst svo að orði í ævisögu Pálma hér í ritinu: „Náttúrulýsingar Pálma, þær sem hann hefur látið frá sér fara, eru margar svo snjallar og orðhagar, að fáir eða engir hafa betur gert. Þær eru gerðar af kunnáttu fræðimanns, hrifningu listamanns og óvenjulegu valdi yfir móðurmáli. Hið sama gildir um velflest sem Pálmi ritaði. Sögur sagði hann flestum betur, enda voru útvarpsþættir hans vin- sælli hjá alþjóð manna en flest annað talað orð á þeim vettvangi“. Verð kr. 120,00 ób., 150,00 í skinnlíki, 195,00 í skinn- bandi. Félagsmenn Bókaútgáfu Menningarsjóðs fá 20% af- slátt frá útsöluverði. Bókaútgáfa Menningarsjóðs.

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.