Andvari - 01.01.1951, Síða 79
ANDVARI
ÞjóÖin er eldri en íslandsbyggð
75
við konu. Hér eru kvennastaðimir 27% eða allt að þrisvar sinn-
um fleiri en vænta mætti að órannsökuðu máli. Verður þetta
atriði naumast skýrt nema á einn veg: Fyrir helgiathöfnum Saur-
bæjanna hafa konur staðið. Sökmn hinnar mikhi virðingar, sem
þær hafa notið, hljóta hústaðir þeirra tiltölulega oft nöfn eftir
þeim.
Skáld og konur með dísarnöfnum teljast í fomritunum ábcr-
andi oft til hinna sömu ætta. Einkum er þetta þó skýrt sérkenni
á hersaættum. Þess er enginn kostur að telja hér upp einstök dæmi,
enda þarflaust. Á miklu einfaldari hátt má sýna, að samband hefir
verið milli skáldmenntarinnar í heiðni og helgistaða dísanna, Saur-
hæjanna. Skáldatal Uppsala-Eddu kemur nú að góðum notum.
Kunnugt er um átthaga 22 hirðskálda, sem þar eru nefnd og voru
uppi á 10. öld og fyrrihluta 11. aldar. Níu em fæddir eða upp
aldir í Saurbæjahreppum. Verða því hlutföllin í þessu tilfelli
sem þ2 og Vn- Það er að segja, að skáldin, sem komin em frá
Saurbæjahreppum reynast hlutfallslega fimrn sinnum fleiri en
skáldin, sem komin eru frá öðmm hreppum landsins. Þessi mun-
ur er svo stórfelldur, að það skiptir litlu máli, þótt ráð væri gert
fyrir því, að í heiðni hefði verið óvenjulega þéttbýlt kringum
Saurbæina. Enda em dæmin deginum ljósari um það, að kvenna-
staðirnir, dísanöfnin, svínasögurnar, Hróð-nöfnin og skáldmennt-
in eru sérkenni, sem heyra saman í þeirri menningarþróun, sem
kenna má við Saurbæina.
Það er beinlínis táknrænt, að eftirfarandi grein skuli standa í
Skáldatali: „Erpur lútandi vó víg í véum og var ætlaður til
dráps. Hann orti dráfu um Saur konungshund og f>á höfúð sitt
fyrir". Elundurinn Saur kemur einnig fyrir í öðru sagriasam-
liengi. Eysteinn konungur illráði á eitt sinn að hafa gert Þrænd-
um kost á því, hvort þeir vildu lieldur hafa fyrir konung sinn
^undinn Saur eða þrælinn Þóri faxa. Þeir völdu hundinn. Að
haki Faxa stendur greinilega frjósemisgoðvera. Árið 1857 fannst
* Sætesdal í Suður-Noregi goðalíkan, sem þá til skamms tíma
hafði verið dýrkað af konu einni. Það kallaðist Faxi, og hafði