Menntamál


Menntamál - 01.12.1935, Side 16

Menntamál - 01.12.1935, Side 16
158 menntamAl ingar, — og þá rís upp ný stélt í landinu, kennara- stéttin. Þessi stélt tók á sig mikla ábyrgð og örlagaríkl lilut- verk, og skal ekki um það rætt hér, hversu vel stétt- in liefir skilið hlutverk sitt og liverju hún hefir fórn- að fyrir það, — en á það skal minnst, að liún hefir alla daga harizt við lítilsvirðingu skammsýnna, óvit- urra og skilningssljórra manna, sem liafa látið sér fátt finnast um það, sem gjört hefir verið fyrir annara manna hörn. Þeir menn, sem í kennarastétt eru um þessar mundir eru frumherjar hennar, einn þeirra var Hallgrímur Jónsson. Það var ekki glæsilegt að gjörast leiðtogi hinna mörgu, smáu þjóðfélagshorgara, — hinnar verðandi ís- lenzku þjóðar. Frumherjarnir urðu að gjöra mörg átök, velta steinum vana og skilningsleysis úr götu, vinna stéttinni virðingu og álit. En íslenzkir kennarar voru þá og eru enn fátækir menn, þraulpíndir af vinnu, komandi í hverja kennslustund daprir af áhyggjum vegna fjárliagslegrar afkomu og hugsandi um velferð sinnar eigin fjölskyldu. „Við notuðum sprungið lampaglas heilan vetur “, sagði Hallgrímur við mig eitt sinn, „og oft sögðum við hjónin, er við gengum fram hjá litlum, snotrum liús- um, liæfilegum fyrir fjölskyldu mína: Hvenær ætli við fáum okkur þak yfir liöfuðið af eigin rammleik.“ Þau hjón reyndu mikla fátækt, ekki sízt meðan börn- in voru ung. Vann Hallgrímur mikið utan kennslustarfa. Á seinni árum hefir hagur hans batnað. — En slík vinna og slikar áhyggjur heimilisfeðra i kennarastétt hafa orðið lil þess tvenns: að drepa eða deyfa hina menningarlegu viðleitni stéttarinnar, og að reka úr stétt- inni ýmsa af hinum dugmestu og gáfuðustu mönnum. Hallgrímur .Tónsson hefir verið einn af hinum ódrep- andi. Hann liefir alla daga barizt fyrir réttindamálum,

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.