Menntamál - 01.12.1935, Blaðsíða 28
170
menntamAl
En á vetrum, þegar snjóar og ísar eru, renna þeir sér
á sleðum og skautum í miðdegishléinu. Yarir það eina
og liálfa stund. Seinni liluta dagsins er að ýmsu nauð-
synlegu unnið. Fer það eítir veðri, árstíðum og þörf,
hvað unnið er. Vinnan er þessi: Viðarliögg, garðrækt,
blómgræðsla, akuryrlcja, innanhússtörf, viðgerð fala,
önnur þjónustubrögð og fleira. Þegar lilé eru, fást dreng-
irnir við ýmislegt smávægi. Þá taka þeir bók í hönd,
syngja og læra eitthvað af því, sem tala á um við þá
næsta dag. Klukkan liálfgengin 8 neyta drengirnir kveld-
verðar. Eftir það mega þeir leika sér, fiska, iðka íþróttir
og hvíla sig. Knattspyrnan er í miklu uppáhaldi hjá
drengjunum. Vetrarmánuðina lesa piltarnir í bókum úr
bókasafni hælisins, tímaritnm og hlöðum. Ýnisir þeirra
þreyta skák. Klukkan rúmlega liálfgengin niu er sam-
eiginleg guðsþjónusta. Eftir það leggjast drengirnir til
hvílu, þreyttir og syfjaðir eftir mikið og golt dagsverk.
Drengirnir fá að sofa til klukkan sjö á sunnudags-
morgnum. Og innan stundar eru þeir komnir i sunnu-
dagafötin sín og tilbúnir að fara í kirkju. En fari þeir
það ekki, er guðsþjónusta höfð í skólasalnum eða lilýtt
er á messugerð, sem útvarpað er.
Skólaleyfi er oft frá miðjum júní til miðs október.
Þann tíma vinna drengirnir að akuryrkju, umhirðingu
gripa og ýmsum öðrum nauðsynjastörfum í þágu liæl-
isins.
Þegar líður á sumar, þarf að hreinsa og greina í sund-
ur garðávöxt, hlaða lieyi saman og flytja það inn, afla
eldiviðar, þurrka liann og koma honum fyrir, tína ber,
vínber, bláber, hindber og týtuber.
Allmikið þarf á borð að leggja fyrir allt heimilisfólk-
ið í Máshult.
Drengirnir una sér vel á hæli þessu. Einn forstöðu-
maður Máshultshælis, Holmberg að nafni, ritaði á þessa
leið: „Mjög oft er heimilisstríð, heimilisólag og heimilis-