Menntamál - 01.12.1935, Blaðsíða 52
194
MF.NNTAMÁL.
ræðufundir haldnir annaðhvort hjá dr. Holger Kjær eða H. Haar-
der kennara, með þátttöku og leiðsögu kennaranna, fjörugum
samræðum yfir kaffiborðum, að ógleymdum söngnum. Á sunnu-
dagskvöldin vorum við jafnan í hýbýlum skólastjóra, J. Th. Arn-
fred, og nutum þar alúðar og gestrisni þeirra hjóna. „Músik“-
kvöld Else Bartholdy fengum við að njóta tónlistar meistaranna,
undir leiðsögu hennar og ágæta slaghörpuleik. Margar fleiri ágæt-
ar samkvæmisstundir mætti nefna, sem við ýmist nutum með
þátttöku kénnaranna eða ein saman, en þetta læt ég nægja.
Hver getur rakið þýðingu slíkra heilbrigðra gleðistunda? Hver
getur til fulls lýst þeim áhrifum, sem þess háttar andlegar nautn-
ir hafa? Þá dul ætla ég mér ekki. En liitt fullyrði ég, að við,
sem dvöldum i Askov-lýðháskóla í sumar, livort sem við vorum
frá íslandi, Noregi, Svíþjóð eða Danmörku, hurfum öll lil heim-
kynna okkar stórum auðugri en við konium, því að frá Askov
fluttum við með okkur nýjar vonir, nýjan þrótt og nýja trú.
Þarna fundum við öll friðsælan blett, þangað sem stunur hins
þjáða mannkyns að vísu ná og mæta fullum skilningi og samúð,
en þar sem þó, þrátt fyrir allt, lifir heilbrigður lífsþróttur, björt
von og óbilandi trú á sigur lífsins.
íslenzkir kennarar, er utan fara, ættu að gcfa þessu námskeiði
gaum, því að margt má þangað sækja og skólavist ódýr. Auk
þess er nokkurn veginn víst, að íslendingar geta fengið styrlc
til námsdvalar þarna, annaðhvort úr Sáttmálasjóði eða frá Dansk-
Islandsk Samfund. Nemur sá styrkur venjulega dvalarkostnaði,
en um hann þarf helzt að sækja i febrúar eða marzmánuði.
Svafa Þórleifsdóttir.
Kort og myndir stækkaðar.
Hentugt er að stækka landakort og aðrar myndir með hjálp
skuggamyndavélar. Er þá ekki annað en að lála myndina koma
fram á stóra örk eða pappaspjald á veggnum, strika svo með
blýanti eftir þeim linum, sem maður óskar eftir á kortið. Þá er
komið fram nafnlaust og ólitað kort. Síðan má lita það eflir
gróðri, landslagi, bergtegundum, ræktun, þéttbýli, j)jóðflokkum o.
s. frv. Einnig má teikna mannvirki og dýr, hús, brýr o. fl. Sig-
urður Runólfsson, kennari i Reykjavík, hefir gert nokkur slík
kort og notað við kennslu.