Menntamál - 01.12.1935, Blaðsíða 77
•MENNTÁMÁL
219
leikamáluni, sem „Kennslubók í fimleikuni“ cr látin bera fram.
En höf. hcfir lagt mikla vlnnu i bókina og hún er samin af alúð
og áhuga, og þess vegna á bókin erindi lil allra þeirra, er fim-
Jeikum unna. //. M. Þ.
Sænskar bækur.
Eg vil nota lækifærið og vekja athygli lesenda Menntamála
,á helztu bókum, sem komið hafa út í Svíþjóð þetta ár og snerta
uppeldi og skólastörf. Skal eg fara fljótt yfir sögu og drepa á
það eitt, sem eg hygg, að koma megi isienzkum kennurum að
notum. Nefni eg þá fyrst þá bókina, sem mest var talað um og
mcsta athygli vakti. Hún heitir: „Svárhanterliga barn“ og kom
í tveimur útgáfum á fárra mánaða fresti. Höfundurinn, Stina
Palmborg, er kennari við Nordhemsskólann i Gautaborg og starf-
.ar þar i rannsóknabekk fyrir gáfnasljó og andlega vanheil börn.
Bókin er að mestu leyti frásagnir um vangæf börn, sem höf.
hefir kynnzt — myndir, dregnar af ást á börnunum, mikilli
sálfræðilegri þekkingu, og svo vel gerðar, að unun er að lesa.
Hún kostar kr. (5.00 hér, og ætti að vera í hverju kennara-
bókasafni.
Þá skal bent á bók eftir heimsfræga vísindakonu, Charlotte
Biihler, prófessor í sálarfræði við háskólann i Vín, cr kom út
í sænskri þýðingu í sumar. Bókin heitir „Ungdoniens siiilsliv“
.og er talin mjög þýðingarmikið vísindarit. Próf. Biihler reisir
kenningar sinar á heimildum frá æskunni s'jálfri, dagbókum, ljóð-
um og sjálfslýsingum unglinga og samtölum við þá. Bókin er
ljós og læsileg og mikils virði fyrir þá, sem kenna eða vinna
með unglingum. Ivostar kr. (5.(55.
Margir kennarar kvarta um ofþreytu og taugaveiklun, sem af
þvi stafa, að þeir verða að leggja á sig óhóflega vinnu, sem mikil
taugaáreynsla fylgir, til þess að hafa i sig og á. Er því ekki úr
vegi, að vekja athygli á nýrri bók, sem heitir í sænskri þýðingu
„Ni máste koppla av. Hur man övervinner nutidslivets páfrést-
ningar", eftir Edmund Jacobson, læknisfræðidoktor í Chicago.
En eigi hefi eg þekkingu til að dæma um bókina. Kostar hér
kr. 7.35 buridin.
Skólabókasöfn eru skammarlega ófullkomin hér á landi, eink-
um í barnaskólum. Er þar eitt þeirra niála, sem vér kennarar
þurfum að vinna röggsamlega fyrir. Hvöt og leiðbeiningu að því
starfi er að sækja í nýja bók, sem heitir „Skolbiblioteket och
undervisningen“, eftir Axel Norbeck, ráðunaut, um bókasöfn við
barnaskólana i Gautaborg. Er hann talinn fremsti sérfræðingur