Menntamál


Menntamál - 01.12.1935, Side 29

Menntamál - 01.12.1935, Side 29
MENNTAMÁL 171 leysi aðalorsök þess, að barnaverndarnefnd verður að taka barn að lieiman og senda á liæli. Sé faðirinn sjald- an viðlátinn á heimilinu, verður heimilisstjórnin oft- ast lítilfjörleg og börnin taka við stjórninni. Verði báðir foreldrar að vinna utan heimilis, er heimilið i reiði- leysi, og verða börnin þá oftast götubörn. Fái börnin algerlega að leika lausum hala, dvelja þau lengst í soll- inum, en þar þróast bezt allt það, sem illl er i fari barnanna“. Kemur þetta vel heim við reynslu annara manna annars staðar. Það er undantekniug, ef yngri en tíu ára drengir eru teknir í Máslmltshæli. Og venjulega koma ekki fram hjá drengjunum stórfelldir gallar l'j'rri en eftir tíu ára aldurinn. Hælisvistin fer ekki fram úr fimm árum. Þeg- ar pilturinn fer af hælinu, þarf hann að hafa náð þeim þroska og þeirri skapfestu, að liann geti að mestu leyti bjargast sjálfur. Ekki þarf að búast við mikilli aðstoð frá heimilunum eða ættingjum þessara drengja, eftir að þeir eru orðnir þetta gamlir. Mikill meiri hluti drengja, sem verið liefir á hæli þesu, hefir hagað sér vel, tekið framförum í öllu góðu, og flcstir drcngjanna orðið nýtir menn í þjóðfélaginu. Forstöðumenn hælis- ins hafa talið sér skylt, að líta eftir drengjunum, þótt þeir liafi verið komnir brott. Þarna í Máshult var byrjað með tuttugu drengi, en siðar voru húsakynni stækkuð, og eftir það var liægt að taka á móti þrjátíu piltum. Eitt mesta fyrirmyndarliælið, sem ég kynntist í utan- för minni í sumar, var Skrubba Skytsiiem í Svíþjóð. Heita má, að það hafi allt til sins ágætis. Landrými er mikið, og skiptast þar á tún, lyngliæðir, holt, ásar, sléttur, klappir, skóglendi, garðar og alcrar. Bygging- ar eru miklar og góðar. Þelta er liæli fyrir drengi. Sér- stök bygging er lianda þeim, svo er liús forstöðumanns- ins og ibúðarhús fyrir kennara og þjónustufólk. Sjö-

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.