Menntamál


Menntamál - 01.12.1935, Side 40

Menntamál - 01.12.1935, Side 40
182 MENNTAMÁL stæð áhrif við það, seni til er ætlazt. Eins er það á- reiðanlega stór skaðlegt að knýja börn tii þess að biðja fyrirgefningar, ef þeim liefir orðið eitthvað á. Allt, sem er knúið fram af ytra valdboði, er hættulegt fyrir skap- gerð barnsins. Eg hefi heyrt kennara segja frá þvi, og vera hreyk- inn yfir, að hann hal'i fengið „óknytta“ strák til þess að hágráta vfir einhverju afbroti sínu. Þetta er há- mark heimskunnar og það eitt er víst, að sá illi andi, sem á að reka í burtu með þessu, kemur aftur með sjö anda sér verri. Þess er krafizt af börnum, að þau elski og virði for- eldra sína, og þó er framkoma l'oreldranna oft þannig, að hún veknr alveg gagnstæðar tilfinningar. Böfrnin eiga að vera kurteis og prúð, og það jafnt þó að þau eigi sjálf litilli kurteisi að mæta og yfirleitt er lítið sam- ræmi milli þeirra skilyrða, sem hörnin húa við og þess, sem al'tur á móti cr ætlazt lil af þeim. Það væri mikið fengið, ef foreldrum og öðrum, sem við harnauppeldi fást, væri það ljóst ,að sökin liggur fyrsl og fremst hjá þeim sjálfum, ef illa fer. Það má reyndar segja, að illt sé að bæta þann skaða, sem skeð- ur er, en oft er það þó hægt að einhverju leyti, ef menn öðlast réllan skilning. Það er áríðandi, að foreldrar og kennarar hugsi sig rækilega um, í hverl skipti, sem þeir finna hvöt hjá sér til þess að vanda um við barn eða refsa þvi, hugsi um hvort barninu sé þelta áreiðanlega l’yrir beztu. Þeim verður að vera það Ijóst, að þeirra eigin vansæla og taugaveiklun má ekki koma niður á börnunum. Mér er nær að halda, að væri sjálfsþekkingin og hreinskilnin nóg, þá fengju börnin oftar að vera í friði fyrir þeim fullorðnu en raun er á. Skyldi verulega hamingjusamur maður nokkurn tíma geta refsað barni. Eg er sannfærð um, að liann gæti

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.