Menntamál


Menntamál - 01.12.1935, Side 47

Menntamál - 01.12.1935, Side 47
MENNTAMÁL mér að þessu sinni. Hafði verið efnt til geysimikillar sýningar í einum stærsta barnaskóla borgarinnar og föng til hennar dregin víða að. Sýningarsalirnir voru ekki færri en 90 og áskipað í öll- um. Eru engin tök að lýsa öllu þvi, sem þar var að sjá. FjÖldi skóla hafði lagt til margbreytt sýnishorn af vinnu nemenda, og var þessu komið þannig fyrir, að hver grein var i sérstakri deild út af fyrir sig. Var því auðvelt að rekja þróun vinnubragðanna stig af stigi, og liægara um að fá yfirlit, en ef hver skóli hefði verið út af fyrir sig með sina sundurleitu liluti. Skólaáhaldasalar og útgefendur kennslubóka höfðu geysimarg- ar og fjölskrúðugar deildir á sýningunni. Mátti þar á mörgu sjá, hve langt grannþjóðir vorar eru komnar i þvi að notfæra sér nútimatækni og vísindi i þágu vinnubragða i skólum, og hvort- tveggja i senn, ánægjulegt að vita erlenda starfsbræður njóta þessara þæginda við störfin, og gremjulegt að hugleiða, hve óra- langt vér hér heima stöndum öðrum að baki í þessum efnum. Ljósa hugmynd um þetta mátti fá af kvikmynd, sem sýnd var í einum sýningarsalnum, og var hún gerð til að sýna þróun í sænsku skólastarfi frá upphafi og til þessa dags. Er hún stór- fróðleg og merkileg i alla staði, enda hefir hinn ágæti skólafröm- uður Hjálmar Berg, fyrv. kennslumálaráðherra, staðið að upp- töku myndarinnar. Væri það mikill fengur, ef unnt væri að fá hana léða hingað til sýningar, og ekki ólíklegt, gð ])að mætti takast, ef kennslumálastjórnin vildi beita sér fyrir því. Kennslumálaráðherra Svía, Finna og Dana, þeir Engberg, Manlere og Borgbjerg, sóttu mótið, og ýmsir fleiri af forystu- mönnum Norðurlandaþjóðanna i menntamálum. Fluttu þeir marg- ar ræður, skörulegar og skemmtilegar, en éinkum þótti mikið til Engbergs koma. Er hann athafnamaður mikill í embætti sínu og þykir ýmsum hann fara allgeyst og óvægilega fram gegn göml- um og hefðbundnum háttum í kennslumálum, en það gerir hann, ef honum sýnist þeir lítils nýtir. Berst hann t. d. mjög ósleiti- lega gegn prófum i þeirri mynd, sem þau liafa verið, og vill m. a. jafnvel afnema hin gömlu stúdentspróf. — Hvernig myndi slíku verða tekið á voru landi, íslandi? Eftirtektarvert var það, og þó engin tilviljun, hversu oft hneig talið að viðhorfi Norðurlandaþjóðanna til einræðisstefnanna í Mið- og Suður-Evrópu. Og i öllum ræðum kvað við einn og sama tón: Menningarhlutverlc Norðurlandaþjóðanna nú á timum er fyrst og fremst að varðveita og göfga hinn forna arf, lýð- ræðið. Hugsanafrelsið og málfrelsið er andlegt lifsskilyrði hinna norrænu þjóða. — Einstaklingurinn á ekki að vera, og má ekki

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.